World Class - Aftur á forsíðu
Laugar - Spöng - Í húsi Orkuveitunnar - Hafnarfjörður - Mosfellsbær - Seltjarnarnes - Kópavogur - Kringlan - Ögurhvarf
Aftur á forsíðu

Kebab - fyrir - 4

500 g Nautahakk, 8-12% feitt

4 msk Brauðraspur

1 msk Létt AB-mjólk

2 msk Graslaukur/laukur, saxaður

½ tsk Salt

¼ tsk Pipar

1 stk  Paprika, rauð

1 stk  Kúrbítur

1 stk  Eggaldin

2 stk Tómatar eða 8 stk kirsuberjatómata

1 stk  Laukur, stór

8 stk Sveppir

 

Hrærið saman hakkinu, raspnum, AB-mjólkinni, lauknum og kryddinu. Látið standa í stutta stund á meðan grænmetið er skorið

í hæfilega bita sem gott er að þræða upp á grillpinna. Mótið litlar bollur, gætið þess að þær séu hæfilega fastar í sér. Ef deigið er of mjúkt er ráð að bæta aðeins meiri brauðraspi í það en ef deigið er of þurrt má bæta örlitlu vatni í það eða meiri AB-mjólk. Þræðið bollurnar upp á grillpinnana og grænmetið þar á milli. Steikið/grillið pinnana í ofni við 180-200°C í um það bil 25 mínútur. Einnig má grilla pinnana á útigrilli. Snúið amk. einu sinni á þessum tíma eða eins og þörf er á.

 

Kebabsósa – fyrir - 4

2 dl Vatn

1 stkKjötkraftur, teningur

1 ½ tsk Kartöflumjöl

2 tsk Púðursykur

¼ tsk Pipar

½ tsk Salt

3 dropar Tabaskósósa

1 msk Ostrusósa

1 stk Tómatur

1 stk Laukur

1 stk Sveppur

1 msk Ólífuolía, rapsolía eða ISIO-4 olía

 

Blandið öllu saman í pott, hleypið upp suðu og látið sjóða í nokkrar sekúndur. Hrærið stöðugt í pottinum á meðan. Takið pottinn af hellunni og haldið sósunni heitri, en látið hana ekki sjóða. Berið fram með kjötbollum ásamt hrísgrjónum og salat.

 

Verði þér að góðu - Kveðja World Class


Laugar Life Fitness Hammer Strength Laugar Cafe