Hollar kryddbollur
- 7 dl Heilhveiti
- ½ dl Hveitiklíð
- ½ - 1 tsk Kanill
- ½ tsk Negull
- ½ - 1 tsk Vanillusykur
- ½ tsk Salt
- 7 tsk Lyftiduft
- 5 dl Létt AB-mjólk
Blandið þurrefnunum saman í skál og bleytið upp með AB-mjólkinni. Mótið kúlur úr deiginu og raðið þeim á bökunarplötu sem spreyuð hefur verið með pönnuúða ( pam fat free ). Bakið við 180-190°C í 35-40 mínútur.
Verði þér að góðu – Kveðja World Class