Ávaxtadesert með Creme frachesósu
1 stk Melóna, t.d. hunangsmelóna
2 stk Mangó
2 stk Kíví
10 stk Jarðarber
1 dl AB-mjólk
1 dl Sýrður rjómi 10%
1½-2 msk Hunang
½ - 1 tsk Vanillusykur
Skerið utan af melónunni og skerið hana í báta. Afhýðið mangó og kíví og skerið í bita. Skolið jarðarberin. Raðið ávöxtunum smekklega á fat. Hrærið AB-mjólkinni, sýrða rjómanum, hunanginu og vanillusykrinum saman í skál. Hellið sósunni í skál og notið sem ídýfu með ávöxtunum.
Appelsínu sorbet
2 ½ dl Vatn
100 g Sykur eða 1 dl strásæta
2 ½ dl Appelsínusafi
safi úr hálfri sítrónu
Hitið saman vatn og sykur og látið sykurinn leysast upp, kælið.
Ef strásæta er notuð er öllu hrært vandlega saman í skál.
Setjið ísinn í frysti og hrærið reglulega í á meðan ísinn er að frjósa
Verði þér að góðu – Kveðja World Class