World Class - Aftur á forsíðu
Laugar - Spöng - Í húsi Orkuveitunnar - Hafnarfjörður - Mosfellsbær - Seltjarnarnes - Kópavogur - Kringlan - Ögurhvarf
Aftur á forsíðu

Ananasmöndlukaka mmmm……

200 g    Hafraklíð

2 tsk      Lyftiduft

40 g       Möndlur

1 lítil dós Ananassneiðar, í eigin safa

¾ dl        Fjörmjólk

4 dl         Kaffirjómi/AB-mjólk

¼ dl        Sykur

1 stk       Eggjahvíta

2 msk    Jurtasmjörlíki

           

Hafraklíðið er malað fínt í kaffikvörn eða mixer eða einhverju öðru tæki sem hefur hníf. Blandið saman klýðinu og lyftiduftinu. Hakkið möndlurnar. Vökvinn er látinn drjúpa af ananassneiðunum, geymið vökvann. Blandið ananasvökvanum, mjólkinni, kaffirjómanum/AB-mjólkinni og sykrinum  saman í skál. Bræðið smjörlíkið og blandið því ásamt eggjahvítunni, möndlunum og mjólkurblöndunni saman við hafraklíðið. Klæðið 24 cm springform með bökunarpappír og spreyið með fituspreyi. Ananas-hringjunum er raðað í botninn og deiginu helt yfir. Stillið ofninn á 220°C og bakið í 17 mínútur. Til að athuga hvort kakan er bökuð er gott ráð að stinga í hana með prjóni og ef hann kemur hreinn út er kakan bökuð. Látið kökuna kólna alveg áður en hún er tekin úr forminu. Njótið…..

 

Ananas jógúrtís

400 g       Ananaskurl, í eigin safa

4 ½ msk Sykur

1 ½ msk Sítrónusafi

2 dósir Hrein jógúrt eða AB-mjólk (360 g)

 

Sigtið ananasinn og hellið safanum í pott ásamt sykrinum og sítrónusafanum. Látið sjóða þar til sykurinn er uppleystur. Kælið og hrærið jógúrtinu/AB-mjólkinni saman við. Hellið blöndunni í grunnt ílát og frystið í um það bil 4 klst eða þar til blandan er orðin að þykku mauki. Hrærið þá ananaskurlinu saman við. Þekið með álpappír og frystið í amk. 4 klst. í viðbót. Gott er að taka ísinn úr frysti um það bil 1 klst áður en á að borða hann. Æskilegast er að láta hann standa í kæli í þessa 1 klst.

 

Verði þér að góðu – Kveðja World Class

Laugar Life Fitness Hammer Strength Laugar Cafe