World Class - Aftur á forsíðu
Laugar - Spöng - Í húsi Orkuveitunnar - Hafnarfjörður - Mosfellsbær - Seltjarnarnes - Kópavogur - Kringlan - Ögurhvarf
Aftur á forsíðu

Heilsu súkkulaðikaka

Fyrir þá sem eru að
hugsa um línurnar
Botninn

1 bolli Eplamús (ósæt)

225 g Sykur

200 g Hveiti

2 egg
1 tsk Lyftiduft

3 msk Kakó

¾ dl Fjörmjólk

 

Þeytið saman eplamús og sykur. Hrærið eggjunum saman við. Sigtið saman hveiti, lyftiduft og kakó og bætið því út í í smáum skömmtum ásamt mjólkinni og hrærið vel í á milli. Spreyið hringlaga form með fituspreyi og hellið deiginu þar í. Bakið við 180°C í um það bil 40 mínútur. Ef baka á skúffuköku skal tvöfalda uppskriftina.

 

Kremið//

2 ½ bolli Flórsykur

½ bolli Kakó

4 msk Kaffi, lagað

1-2 msk Fjörmjólk ef þarf

           

Hrærið öllum innihaldsefnunum saman í skál. Bíðið með að setja

fjörmjólkina út í þar til séð er að þess þurfi. Setjið þá aðeins eina msk í einu. Smyrjið á kökuna.

 

 

Verði þér að góðu – Kveðja World Class

Laugar Life Fitness Hammer Strength Laugar Cafe