World Class - Aftur á forsíðu
Laugar - Spöng - Í húsi Orkuveitunnar - Hafnarfjörður - Mosfellsbær - Seltjarnarnes - Kópavogur - Kringlan - Ögurhvarf
Aftur á forsíðu

Grennri líkami – Heilbrigðara líf

Leiðin að grennri líkama og heilbrigðara lífi felur í sér að þú verður að hyggja að matarvenjum þínum, draga úr neyslu hitaeininga og hreyfa þig meira. Þetta eru tæplega ný tíðindi fyrir þig ef þú ert of þung/ur. Lífið er fullt af gildrum og ef þú ætlar að ná markmiði þínu verðurðu að breyta daglegum venjum.


Leiðin að markmiðinu er mikilvægari en markmiðið sjálft.

Þú ákveður sjálf/ur hvernig þú vilt haga framtíð þinni og stjórna líkamsþyngdinni. Oft er auðveldara að breyta venjum sínum með hópi af fólki sem á við sama vanda að stríða. Mestu máli skiptir hver áhugahvati þinn er, finndu hann og þá finnurðu sanna hvatningu.

 

Venjur þínar tengjast saman í atferliskeðju.

Ef þú breytir einni venju leiðir það samtímis til þess að aðrar venjur breytast. Ein aðgerð leiðir til annarrar. Þegar þú rýfur mynstrið breytast aðstæður þínar og atferli – þú hugsar og hegðar þér með öðrum hætti. Þetta segir okkur að oft er það bara eitthvað eitt eða tvennt sem við þurfum að breyta og þá mun það hafa keðjuverkun á allt ferlið.

Því er mikilvægt að þú gerir þér grein fyrir því sem þú gerir og hverjar venjur þínar verða. Þegar þú hefur breytt gamalli venju hefst vinna við að æfa og þjálfa nýja venju.

 

Við hvaða aðstæður er hætta á að þú hrasir

þannig að þú borðir eitthvað annað en þú hafðir ráðgert? Mikilvægt er að vita hvar gildrurnar eru og hvernig þú getur forðast að falla í þær. Mundu það einnig að dagurinn er ekki ónýtur ef þú færð þér eitthvað óhollt í hádeginu, taktu þig á og stattu þig það sem eftir er dagsins.

 

Beint samband er á milli heilsunnar og þess matar sem þú neytir.

Ef þú hugsar og hegðar þér með öðrum hætti varðandi hvers konar máltíðir geturðu breytt matarvenjum þínum. Þegar þú hefur náð stjórn á aðstæðunum nýturðu matarins betur.

Málið snýst um skipulagningu - hvað þú kýst að borða, hvar þú borðar (heima eða að heiman), hvenær þú borðar og hvernig þú dreifir máltíðunum yfir daginn.  Lestu kaflana um mataræðið vel í heilsuhandbókinni þinni og reyndu að breyta því sem breyta þarf til þess að uppskera góðan árangur.


Laugar Life Fitness Hammer Strength Laugar Cafe