Heilsupunktar World Class
Pizza – Versti matur í heimi!
Hefurðu einhvern tímann velt því fyrir þér hvaða skyndibiti er sá allra versti??
Svínarifjasteik, Bacon, tvöfaldur ostaborgari..... nóbb. Nýjar rannsóknir sýna að að Pizza er sökudólgurinn. Í rannsókninni var tekið meðaltal af 36 pizzutegundum og sýndi hún að pizzur með miklu kjötáleggi eða ostafylltum botni eru sennilega versti matur sem þú getur sett ofan í þig. Einungis tvær sneiðar af ostafylltri pizzu innhalda yfir 900 kaloríur, 20 grömm af mettaðri fitu sem er, ef þú hefur gleymt því slæma fitan og 2.000 milligrömm af soldium (salt).
Pizza með tvöföldu feitu kjötáleggi inniheldur 1.000 kaloríur, 66 grömm af fitu og þar af 28 grömm af fitu í 2 sneiðum og 3.200 milligrömm af soldium. Spurning um að fá sér eitthvað annað en pizzu í kvöldmat?
Viss kolvetni geta valdið krabbameini
Kartöfluflögur, franskar og aðrar vörur sem innihalda mikið magn kolvetna og fitu kunna að innihalda einnig efni sem getur valdið krabbameini samkvæmt nýjum rannsóknum. Efnið acrylamide verður til við undirbúning nokkurra matvæla sem ekki var vitað til áður og þykir sannað að geti valdið krabbameini. Rannsóknin náði yfir 100 tegundir af matvælum og kom í ljós að tilbúnar franskar og kartöfluflögur sem eru steiktar, ofnbakaðar eða djúpsteiktar geta innihaldið þó nokkuð magn af acrylamide.
Lax tvisvar á viku – Verndar hjartað
Nýjar Rannsóknir hafa sýnt að mataræði sem er ríkt af Omega-3 fitusýrum geti minnkað umframfitu hjá konum og körlum. Matvæli rík af Omega-3 eru t.d. Lax, Lúða, makríll, o.s.frv. Rannsóknirnar sýndu einnig að Omega-3 fitan í fisknum getur minnkað líkurnar á því að fólk sem fær hjartaáfall deyji skyndilega. Þetta þýðir að þú ættir að reyna að borða fisk allavega tvisvar í viku, allt umfram það er bara gott mál.
Hvað gerist í líkamanum þegar maður verður ástfanginn?
> Líkaminn eykur framleiðslu á dópamíni, noradrenalíni og fenaletylamini en það eru efnin í líkamnum sem gera okkur jákvæð.
> Líkamshitinn hækkar og púlsinn einnig og þú þarft ekki að sofa jafnmikið og áður
> Líkaminn hefur framleiðslu á hormíninu Ocytosin sem gefur okkur vellíðunartilfinningu
Þetta minnir svolítið á þau einkenni sem við fáum þegar við erum að æfa reglulega og borða hollan mat, finnst ykkur það ekki?
Þeir sem reykja eru að stytta líf sitt verulega
Með hverri einustu sígarettu sem þú púffar niður ertu að stytta líf þitt um heilar 11 mínútur. Segjum að þú reykir einn pakka á dag í fimmtíu ár, þá ertu búin að stytta líf þitt um tæp 7 ár ogef þú reykir einn og hálfan pakka á sama tíma erum við að tala um rúm 10 ár.
Ef það er einhvern tímann rétti tíminn til að drepa endanlega í þá er það núna!
Rannsóknir á holdafari 9 ára skólabarna á Íslandi
Rannsóknir yfir tímabilið 1938-1998. Á þessu tímabili jókst hlutfall of þungra stúlkna úr 3,1% í 19,7% og of þungra drengja úr 0,7% í 17,0%. Tíðin offitu jókst að sama skapi úr 0,4% í 4,8% meðal stúlkna og úr 0,0% í 4,8% meðal drengja. Þróunin er mjög hröð síðustu áratugina.
Sömu þróunar hefur orðið vart í öðrum löndum og hefur hún leitt til þess að Alþjóðaheilbrigðisstofnunin skilgreinir offitu sem faraldur er nær til alls heimsins.
Og ekkert bendir til þess að þessi þróun sé að snúast við. Öðru nær! Munið að börnin temja sér siði foreldrana.
Nokkrir fræðandi punktar um H2O - VATN
>75% Bandaríkjamanna eru með krónískan ofþurrk.
(Á sennilega við helminginn af heiminum, þar með talið Íslendinga)
>Jafnvel vægur ofþurrkur getur hægt á brennslukerfi líkamans um 3%.
>Ónóg neysla af vatni, er ástæða númer EITT fyrir þreytu yfir daginn.
>Útkoma frá einni könnun gefur í skyn að 8-10 glös af vatni yfir daginn gæti létt á bakverk og liðaverkum fyrir allt að 80% þolenda.
>Ef vatnið í líkamanum lækkar um aðeins 2% getur það valdið lélegu skammtíma minni, vandræðum við einfalda stærðfræði og vanda við einbeitingu á tölvuskjá eða á prentaðri blaðsíðu.
>Að drekka 5 glös af vatni lækkar hættuna á krabbameini í þörmum um 45%, plús að geta lækkað hættuna á brjóstkrabba um 79% og maður er í 50% minni hættu á að fá blöðru krabbamein.
>Drekkur þú jafn mikið vatn og þú ættir að gera á hverjum degi?