Ávextir með Jógúrtrjóma
Salatið:
Jarðarber
Kíví
Melóna
Vínber, steinlaus
Epli
Aðrir ávextir eftir árstíð og smekk.
Jógúrtrjómi:
180g Hrein jógúrt eða AB-mjólk
1 dl Rjómi
1 tsk Sherry
2 tsk Púðursykur
Skerið ávextina í mátulega stóra bita, vínberin og jarðarberin gjarnan í tvennt.
Setjið ávextina í skál og kælið.
Þeytið rjómann og hrærið jógúrtinni/AB-mjólkinni, sykrinum og sherrinu
varlega saman við. Kælið rjómann og berið fram með ávaxtasalatinu.
Um 150 g af ávaxtasalati er hæfilegur skammtur fyrir einn.
Uppskriftin að jógúrtrjómanum dugar fyrir 4-5.