Æfingarnar – nokkur hollráð
Æfingaráætlun
Reyndu að fylgja æfingaráætlun þinni eins vel og kostur gefst. Ef þú ert ekki alveg örugg(ur) á því hvernig æfingarnar eru framkvæmdar skaltu ekki hika við að spyrja leiðbeinanda þinn, það eykur sjálfsöryggi þitt og tryggir að þú sért að gera æfingarnar rétt sem dregur úr hættu á meiðslum og slysum. Skoðaðu einnig vel kaflann um æfingar sem fer hér á eftir
Drekktu vatn og nóg af því
Líkami okkar er að mestum hluta til vatn eða um 50-60% og því er mikilvægt að við hugum vel að vökvaneyslu hvern einast dag og líka á nammidögum. Æskilegra er að drekka reglubundið yfir allan daginn í stað þess að drekka mikið magn í einu. Ef við drekkum smátt og smátt yfir daginn heldur líkaminn vökvanum frekar eftir í stað þess að við pissum honum strax út aftur. Við mikið líkamlegt erfiði geturðu misst allt að 1½ líter af vatni með svita og útgufun. Því er nauðsynlegt að mæta vökvatapi með því að drekka nægjanlegt vatn. Vatn inniheldur engar kaloríur og þú þarft að vera ansi dugleg(ur) til þess að vera að drekka of mikið af því. Besti mælikvarðinn á það hvort nóg er drukkið er liturinn á þvaginu, en æskilegt er að þvagið sé ljóst, nánast eins og vatn yfir daginn.
Fjölbreytni
Líkami okkar er tiltölulega fljótur að aðlagast aðstæðum og því þarf að hafa hreyfinguna fjölbreytilega og með nýjum áherslum og auknu álagi eftir því sem á líður. Leiðbeinendur þínir munu leggja áherslu á það að koma líkamanum á óvart með nýjum æfingum. Þú þarft aftur á móti að koma honum á óvart með því að auka álagið eftir Því sem styrkur þinn og úthald eykst og þú nærð betri tökum á æfingunum og sæmhæfingin verður betri. Fjölbreytni verður svo til þess að þú verir síður leið(ur) á æfingunum.
Hvíldin er mikilvægur hluti af heildinni
Þegar miklar og strangar æfingar eru stundaðar er næg hvíld og svefn afar mikilvæg. Það er vegna þess að í hvíld fer fram endurnýjun á vöðvavef líkamans. Þegar talað er um nægan svefn er átt við ekki minna en 8 klst á nóttu. Svefnþörf er þó afar mismunandi og mikilvægt er að hlusta vel á líkama þinn og hlýða skilaboðum hans. Mikil óþarfa streita er mjög heilsuspillandi og einn af áhættuáttum hjarta og æðasjúkdóam. Því er mikilvægt að vinna gegn streitu með því að dekra við sig af og til með því að fara reglulega í sund, heita potta, gufu og leyfa sér stöku nudd af og til. Líkamsrækt er t.d. frábær leið til þess að losna við streitu.