World Class - Aftur á forsíðu
Laugar - Spöng - Í húsi Orkuveitunnar - Hafnarfjörður - Mosfellsbær - Seltjarnarnes - Kópavogur - Kringlan - Ögurhvarf
Aftur á forsíðu

Nammidagur nammi namm...

Fyrir flesta er það að taka nammidag algjör nauðsyn. Nammidagar eru í góðu lagi en bara einu sinni í viku og ekki oftar. Notaðu nammidaginn sem verðlaunadag því að við erum jú öll mannleg og þurfum okkar verðlaun þegar við erum að standa okkur sérstaklega vel. Þegar löngunin í súkkulaði eða skyndibita gerir óþyrmilega vart við sig á öðrum dögum skaltu hugsa þér gott til glóðarinnar á næsta nammidag og reyna að þrauka.

 

Mikilvægt er að hafa skipulag á því hvenær þú ætlar þér að nýta nammidaginn en þó þarftu að vera framsýn, skipulögð og sveigjanleg. Til dæmis ef til stendur að fara í skírnarveislu á sunnudegi þá færum við bara nammidaginn áfram um einn dag og reynum að passa okkur á laugardaginn. Á þessu eina degi skaltu borða þinn uppáhaldsmat eða gotterí og það án alls samviskubits. Mundu bara að sleppa þér ekki alveg og ekki gleyma að borða eitthvað hollt á nammidaginn ( það má víst líka J og haltu vatnsdrykkjunni óbreyttri.

Hugsunin með því að setja inn einn nammidag í viku er tvíþætt. Annars vegar til þess að þú springir ekki á mataræðinu og farir að leyfa þér eitthvað smá svindl alla daga og hins vegar til þess að gefa brennslunni smá auka kraft. Það sem gerist nefnilega oft þegar við erum í miklu kaloríuaðhaldi er að líkaminn er ekki að fá næga orku til orkuefnabrennslunnar og minnkar þar af leiðandi brennsluna. Þetta gerist þó ekki á einum degi heldur yfir nokkra daga og er því gott ráð að gefa honum “kaloríuboozt” svo sem einu sinni í viku. Þá setur hann brennsluna aftur á fullt og við léttumst og léttumst og léttumst…..

Laugar Life Fitness Hammer Strength Laugar Cafe