World Class - Aftur á forsíðu
Laugar - Spöng - Í húsi Orkuveitunnar - Hafnarfjörður - Mosfellsbær - Seltjarnarnes - Kópavogur - Kringlan - Ögurhvarf
Aftur á forsíðu

Hafðu það hugfast að ekki er allt
glatað þó þú misstígir þig öðru hverju

Höfum hugfast að þó að þú lendir í því að eiga einn og einn slæman neysludag merkir það ekki að stríðið við „offitudrauginn"sé tapað. Í stað þess að fyllast sjálfsmeðaumkun og að sökkva þér á fullu í ofát verður þú  að vera meðvitað um að það er heildarmyndin sem skiptir máli. Það falla allir einhvern tímann, meira að segja þeir sem eru að missa hvað mest. Málið er að láta það ekki hafa áhrif á heildina og muna að þú ætlar að klára þetta og EKKI GEFAST UPP þó að þú missir aðeins þráðinn.

Þú getur þetta, annars værum við ekki að aðstoða þig í þessu, við höfum trú á að ALLIR geti tapað þeirri fitu sem þeir vilja og þú líka.

 

Forðastu að dæma þig. Gerðu þér strax grein fyrir því að þetta er ekki endilega keppni, hvorki við sjálfan þig né aðra. Upplifðu líkamann eins og hann er, gerðu eins og þú getur og láttu þar við sitja. Heilsan verður betri og hugurinn þroskast og þróast við ástundun á styrktaræfingum og hæfilegum brennsluæfingumm. Þú ert að gera þetta fyrir sjálfa(n) þig og engan annan, njóttu þess!

Fyrir hvert kíló sem þú léttist og hvern sentímetra sem þú grennist
batnar heilsan, bæði nú og til frambúðar.


Laugar Life Fitness Hammer Strength Laugar Cafe