World Class - Aftur á forsíðu
Laugar - Spöng - Í húsi Orkuveitunnar - Hafnarfjörður - Mosfellsbær - Seltjarnarnes - Kópavogur - Kringlan - Ögurhvarf
Aftur á forsíðu

Sjö frábærar leiðir til þess að minnka sykur í mataræði þínu


1. Haltu þig ALVEG frá gosdrykkjum

Gosdrykkir eru stærsta ástæðan fyrir allt of miklum sykri í mataræði okkar. Það hefur verið sagt að það magn sem er í gosdrykkjum geri þá að “fljótandi súkkulaðistykkjum”. Nýlegar rannsóknir hafa sýnt að meðal bandaríkjamaður drekki 578 gosdósir á ári hverju og Íslendingar og sérstaklega unga kynslóðin á ekki langt í land með að skáka bandaríkjamönnunum. Ef þú veltir því fyrir þér að hver og ein gosdós inniheldur u.þ.b. 10 kúfullar teskeiðar af sykri þá erum við að innbyrgða 5,780 teskeiðar af sykri á ári, og þá er ekki meðtalinn allur annar sykur í mataræðið okkar.

 

2. Hættu að bæta sykri við mataræðið þitt!

Besta lausnin til þess að minnka sykurinn í mataræðinu er að minnka þessa daglegu neyslu sem maður er oft hættur að taka eftir. Hættu að setja sykur út á morgunkornið þitt, í kaffið eða teið. Notaðu frekar gervisykur eins og Sweet & Low eða Canderel.

 

3. Minnkaðu neyslu einfaldra kolvetna.

Einföld kolvetni eins og hvítt brauð, hvítt pasta, “instant” hrísgrjón, kex og kökur eru mjög snögg að breytast í sykur í líkamanum og hafa þannig stórkostlega áhrif á blóðsykurjafnvægi líkamans. Þörfin í sætindi eykst til muna og líkaminn mun frekar halda í kaloríurnar og geyma þær sem fituforða heldur en að eyða þeim. Lítið unnin matur eins og grænmeti, grófkorna brauð, brún grjón, sætar kartöflur, ávextir og hnetur ( í hófi ) eru frábærir orkugjafar og ættu að borðast daglega.

 

4. Passaðu þig á “ Fat Free “ mat.

Það að vara sé fitulítil eða fitulaus þýðir ekki endilega að hún sé mjög kaloríusnauð eða innihaldi ekki neinn sykur. Það eru meira að segja dæmi um það að vörur sem eru auglýstar “Fat Free” séu með helmingi meira magn en upprunalega útgáfa vörunnar.

 

5. Borðaðu reglulega og borðaðu hollt.

Þetta hljómar eins og gamla tuggan sem þú hefur sennilega heyrt þúsund sinnum, en þetta er í hnotskurn gyllta reglan til þess að ná árangri í líkamsþjálfun. Fullt af rannsóknum benda til þess að líkaminn vinni eingöngu á hámarksafköstum þ.e. sé á hámarksbrennslugetu þegar við erum að borða á 2-3 tíma fresti blandað mataræði sem inniheldur kolvetni, prótein og fitu í öllum máltíðum.

 

6. Leyfðu sjálfum þér öðru hverju að “svindla”

Það er nú einu sinni þannig að við manneskjurnar þráum oft mest það sem við megum ekki fá, utan við þá staðreynd að sykur og fita eru það sem gefa matnum þetta mmmm... bragð. Leyfðu þér einu sinni í viku að fá þér eitthvað sem þig virkilega langar í þótt kaloríurnar séu svívirðilega margar. Súkkulaðið eða eftirrétturinn smakkast líka aldrei betur en þegar samviskan er hrein og maður finnst maður eiga “inni” fyrir nammideginum.


7. Árangur - ekki fullkomnun.

Oftar en ekki finnst manni að maður hafi rústað heilum degi ef að þú freistast í smá nammi eða feitan mat og hugsar til fjandans með megrunina, ég er þegar búin að rústa deginum og ætla bara að halda áfram að sukka og byrja síðan á morgun. Ekki hugsa þetta svona. Fyrir það fyrsta en ENGINN fullkominn og það að detta í smá nammi þýðir ekki að allt er unnið fyrir gíg. Hugsaðu þetta frekar sem debet og kredit. Þegar þú ert búinn að vera að standa þig vel áttu inni fyrir nammideginu og getur leyft þér smá munað án samviskubits en þegar þú fellur þá skuldarðu brennslu. Ef þú færð þér 1 stk rækjusamloku skuldarðu 450 kaloríur og verður því að taka 45 mínútna brennslu til þess að “jafna þetta út” einfalt og áhrifaríkt.


Laugar Life Fitness Hammer Strength Laugar Cafe