Hvernig næ ég árangri í líkamsrækt?
- Án markmiða er það ómögulegt!
Hvað?
Gott útlit er ekki gott markmið. Til þess að markmiðin þín séu að virka þurfa þau að vera mun
nákvæmari og því nákvæmari sem þú ert því betur mun þér takast upp með að framfylgja þeim.
Að losa sig við 5 kíló af fitu á næstu 8 vikum og auka vöðvamassa um 2 kíló segir nákvæmlega hvað það er
sem þú ætlar að gera og þá er bara að leggja leiðina til þess að ná þessu markmiði. Þú uppskerð það sem þú sáir
Hvers vegna?
Hugleiddu ástæður þinar fyrir að vilja breyta líkama þínum og lífsstíl. Gleymdu öllum yfirborðsástæðum og leitaðu þess sem raunverulega hvetur þig til þess að ná markmiðum þínum. Þú verður að horfast í augu við veikleika þína og taka á þeim, öðruvísi gengur dæmið ekki upp. Til þess að leysa vandamál er nauðsynlegt að vita í hverju vandamálið liggur, skrifaðu niður það sem þú telur vera ástæðuna fyrir því að þú hefur þyngst of mikið og nærð ekki að losna við það aftur. Það er mikið auðveldara að takast á við eitthvað sem er búið að draga fram í dagsljósið.
Hvenær?
Dagsetningar eru mjög mikilvægar. Ekkert er meira hvetjandi en tímaþröng. Passaðu þó að skapa jákvæða pressu en ekki neikvæða. Þú verður að vera raunhæf/ur þegar þú setur þér markmið. Hafðu þau það erfið að þú hafir fyrir þeim en ekki svo erfið að þú þurfir að umturna öllu í kringum þig. Galdurinn er að setja sér markmið sem þú getur sætt þig við og getur haldið áfram með eftir að átakið er búið.
Hvernig?
Myndaðu stuðningshóp í kringum þig sem getur hjálpað þér til þess að ná markmiðunum þínum. Að mæta í stuðningshóp á æfingarstöðinni þinni eða að hafa fjölskylduna samstillta í átakinu getur skipt höfuðmáli hvort árangur næst eða ekki. Það er gott að æfa í góðra vina hópi og gerast honum líkur segir máltækið og það er svo sannarlega satt. Að finna sanna hvatningu er eitthvað sem við þurfum öll og vertu óhrædd/ur við að leita til annara eftir ráðum og stuðningi.