Mataræðið – nokkur hollráð!
Hollur matur með nægu grænmeti og ávöxtum skiptir máli fyrir
heilsu okkar og líðan. Það er líka mun auðveldara að halda þyngdinni
í skefjum ef við borðum mat þar sem fitu og sykri er stillt í hóf.
Svo má ekki gleyma að borða reglulega, þrjár til sex máltíðir á dag.
Matur sem gripinn á hlaupum er sjaldan hollur.
Sósan gerir oft gæfumuninn. Í einni matskeið af hamborgarasósu eru jafnmargar
hitaeiningar og í fimm matskeiðum af súrsætri sósu, átta matskeiðum af brúnni sósu
(ef hún er ekki uppbökuð!), eða tuttugu matskeiðum af salsasósu!
Þú getur borðað tvær brauðsneiðar í staðinn fyrir eina með því að smyrja
þunnt eða nota sinnep í staðinn fyrir þykkt lag (10 g) af smjöri, Smjörva eða majonessósu.
Fimm hundruð grömm af grænmeti og ávöxtum á dag minnka
líkur á hjartasjúkdómum og mörgum krabbameinum.
Samkvæmt verðkönnun ASÍ og Manneldisráðs 15. október 2002 kostaði
það 72 krónur að fá 200 grömm af grænmeti á dag.
Það er auðveldara en þú heldur að ná fimm skömmtum af grænmeti og ávöxtum á dag.
Notaðu nýjungar eins og Booztdrykki til að ná upp í magnið.
Það er gott að grípa ávöxt til að seðja hungrið milli mála.
Er ekki örugglega salat með hádegismatnum hjá þér?
Eftir kl 16:00 skaltu reyna að minnka kolvetnisgjafa eins og pasta, grjón, brauð og kartöflur og fá meira af fersku salati og grænmeti.
Grænmeti gefur matnum lit, er þinn matur nokkuð í svart/hvítu