Skilmálar
Laugar ehf (World Class) halda úti þessu vefsvæði og fleiri vefsvæðum sem tengd eru Worldclass.is.
Þegar notandi notar þessi vefsvæði samþykkir hann sjálfvirkt skilmála vefsvæðisins sem fara hér á eftir.
Einstaklingum sem ekki hafa náð 18 ára aldri er ekki heimilt að nota vefverslunarkerfi Worldclass.is nema með fullu leyfi forráðamanna.
World Class tekur ekki ábyrgð á að efni vefsvæðis sé aðgengilegt frá öllum tölvum, þá bæði er átt við einstaklingstölvur sem og tölvur staðsettar í öðrum löndum en á Íslandi.
World Class áskilur sér allan rétt á því að breyta upplýsingum, verðum og skilmálum á vefsvæðum sínum án fyrirvara.
Notendum er óheimilt að senda til vefsvæða World Class upplýsingar sem geta talist ólögmætar eða fela í sér refsivert brot eða brot gegn einkaréttarlegum hagsmunum.
Allar upplýsingar á vefsvæðum World Class eru eign World Class nema annað sé tekið fram, óheimilt er að nota efni af vefsvæðum World Class á öðrum vefsvæðum, í blaðagreinum eða til opinberrar birtingar nema með samþykki World Class.
Allar upplýsingar á vefsvæðum World Class eru birtar með fyrirvara um villur, rangar dagsetningar, verð og annað. Engin ábyrgð er tekin á stafsetningarvillum né röngum upplýsingum á vefsvæðum World Class.
