Saga og hlutverk World Class

World Class var stofnað í júlí árið 1985 og er fyrirtækið yfir 20 ára. Fyrirtækið var stofnað að Birni Kr. Leifssyni og fjölskyldu. Starfsemin byrjaði í Skeifunni 3c í litlu húsnæði, þremur árum síðar fluttist starfsemin í Skeifuna 19 og þá var stærðin nánast tvöfölduð í fermetrum talið. Árið 1995 flutti fyrirtækið í eigin húsnæði í Fellsmúla þar sem aðstaðan var orðin 1.760m2 og voru höfuðstöðvar fyrirtækisins starfræktar þar þangað til 2004 er þær fluttust í Laugar að Sundlaugavegi 30a.

Árið 2000 var opnuð glæsileg stöð í Austurstræti og árið 2001 var þriðja stöðin opnuð í Spönginni í Grafarvogi. Árið 2004 var starfsstöðinni í Austurstræti lokað og ný opnuð í húsi Orkuveitunnar að Bæjarhálsi.

Í desember 2007 og janúar 2008 voru opnaðar 4 stórglæsilegar World Class stöðvar þær eru staðsettar i Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Seltjarnarnesi og Kópavogi.

Laugar er stærsta heilsuræktarmiðstöð landsins, húsnæðið er 7.150 m2. Í Laugum er að finna heilsurækt, Baðstofuna sem er glæsilegt spa með 6 tegundum af gufum, hvíldarherbergi, heitum pott og veitingastað. Þar er einnig að finna snyrti- og nuddstofu, veitingastað, hárgreiðslustofu, sjúkraþjálfun. Unnið er í samstarfi við Reykjavíkurborg sem rekur úti- og innisundlaug á staðnum.


Hlutverk og stefna World Class.

Efla líkamlegt atgervi hjá viðskiptavinum sem og lækka kostnað heilbrigðisþjónustunnar

Framtíðarsýn

Vera leiðandi fyrirtæki á heilsuræktarmarkaði á Íslandi

Við stefnum að eftirfarandi markmiðum:

  1. Vera í forystuhlutverki í rekstri og þróun líkamsræktarstöðva
  2. Veita framúrskarandi og faglega þjónustu
  3. Hafa yfir að ráða hæfu og metnaðarfullu starfsfólki
  4. Skila arðbærum rekstri
  5. Efla tengingu okkar við heilbrigðis- og menntakerfið


Gildi World Class

  1. Þjónusta

    Við viljum vera þekkt fyrir framúrskarandi þjónustu og leitum stöðugt nýrra tækifæra til að bæta þjónustu.
  2. Samstarf

    Við vinnum saman og finnum lausnir. Samskipti okkar einkennast af jákvæðni, heiðarleika, trausti og virðingu. Við tökum ábyrgð á því sem við erum að gera og viðurkennum mistök okkar.
  3. Þekking

    Við vitum hvaða þekkingar er þörf í okkar starfi til að sinna því vel. Við leitum sífellt leiða til að auka þekkingu okkar og miðlum henni okkar á milli.

Næstu tímar

Næstu námskeið