Góð þátttaka í tröppuhlaupsáskorun World Class í dag
Góð þátttaka var í tröppuhlaupsáskorun World Class í dag þrátt fyrir veður og krefjandi aðstæður. Í tröppuhlaupinu er hlaupið niður Turninn frá 15. hæð og upp svokallaðan „Himnastiga“ í Kópavogsdal, samtals um 1.000 tröppur. Tröppuhlaupið verður mánaðarlegur viðburður hjá okkur og næsta hlaup verður laugardaginn 25. febrúar kl. 11:00.
Besti tími í hlaupinu í dag var 13:39:35. Frábær árangur það!



