• Maður Nudd

Bóndadagurinn 2012

19.1.2012

Tveir fyrir einn í Baðstofu

Í tilefni bóndadagsins 20. janúar n.k. verður tveir fyrir einn tilboð í Baðstofu.

Bóndadagstilboð fyrir korthafa í Baðstofu

Korthafar í Baðstofu geta boðið maka eða vini með sér í Baðstofuna á bóndadaginn.

Kengúrusteik á tilboð í Baðstofu

Í Baðstofu Lauga er boðið upp á glæsilega smárétti, á bóndadaginn verður sérstakt tilboð á kengúrusteik.
Kengúrusteik
70 gr. kengúrufillet með mangóragout og balsamic glace.  Kr. 1.650,-

15% afsláttur á gjafabréfum í Laugar Spa í eftirtaldar meðferðir

Íþróttanudd
Þétt og gott nudd sem dregur úr bólgum og streitu. Gott fyrir þá sem stunda íþróttir og þá sem eru með verki í baki, herðum, vöðvabólgu og þreytu í líkamanum.
 
Draumur Bóndans​
Slappaðu af í góðu baknuddi til að losa um vöðvaspennu samhliða að láta taka fæturna fyrir í lúxus fótadekri með skrúbbi, nuddi með sérvaldri olíu fyrir hvern og einn
 
Herradekur 3 klst
Dekrað er við fæturnar, neglur snyrtar og húðin mýkt. Dásamlegt andlitsbað þar sem notast er við [ comfort zone ] herrakrem sem er sérhannað til að næra og vernda húðina.  
Unaðslegt og slakandi 60 mín heilnudd sem mýkir vöðvana og losar um vöðvabólgu.

Spa fótsnyrting
Lúxus fótsnyrting þar sem neglur eru klipptar og naglabönd mýkt. Þurrir hælar eru raspaðir og nuddaðir með heitum steinum, skrúbbkremum og olíum. Árangurinn er vel snyrtir og mjúkir fætur.


Um Baðstofu Lauga

Laugar er fyrsta flokks fimm stjörnu heilsulind með baðstofu að evrópskri fyrirmynd þar sem slökunar- og lækningamáttur vatnsins er í hávegum hafður. Misheitar blautgufur og þurrgufur með mismunandi ilmum, nuddpottur með jarðsjó, heit og köld sjóböð og sérstakar fótalaugar. Sex metra breiður foss sem hægt er að baða sig undir. Fossinn er hannaður af Sigurði Guðmundsyni listamanni.

Í baðstofunni er alls sex gufur hver með sínu þema. Hver gufa hefur sinn einstaka ilm og má m.a. anda að sér sítrónu, piparmyntu og lavender svo eitthvað sé nefnt. Ákveðið þema einkennir þær og þar má m.a. heyra fugla- og lækjarnið, upplifa stjörnuhvolfið sem og sólarupprisu eða hverfa til austurrísku bjálkakofanna.

Þá er nuddpottur byggður úr graníti þar sem hægt er að láta þreytuna líða úr sér í nuddpotti með upphituðum jarðsjó eða hvíla þreyttar fætur í þar til gerðum fótlaugum. Þeir sem vilja ferska upplifun skella sér í heit og köld víxlböð í sérútbúnum klefum eða baða sig í 6 metra breiðum fossi lystilega hönnuðum af Sigurði Guðmundssyni listamanni. Handbragð og listasmíði Sigurðar er einstök og einkennist af handbragði meistara sem á sér engan líkan.

Hvíldarherbergi baðstofunnar er draumi líkast þar sem íslenskt landslag prýðir veggina ásamt kínversku graníti og listaverkum Sigurðar Guðmundssonar, að ógleymdum arninum sem prýðir miðju stofunnar.
Ekki má gleyma að minnast á veitingaaðstöðuna í baðstofunni. Þar er hægt að trítla á sloppnum eða handklæðinu og fá sér svalandi drykk eða léttar veitingar í fallegu umhverfi.


Fréttir eftir mánuðum


Næstu tímar


Þetta vefsvæði byggir á Eplica