• heilsuaskur-logo

World Class og Mataskur í samstarfi

13.1.2012

Til að komast í betra form er mjög mikilvægt að venja sig á næringarríkt og heilnæmt mataræði meðfram aukinni hreyfingu svo vellíðan og árangur verði sem mestur.

Oft er talað um að næringin sé 50-70% af árangri.

Fyrirtækið MatAskur ehf sem framleiðir HeilsuAsk vill í samstarfi við World Class bjóða öllum á námskeiðum WC einstakt tilboð á HeilsuAski á meðan á námskeiðinu stendur.

HeilsuAskur býður ekki aðeins upp á næringarríkar, fjölbreyttar og girnilegar máltíðir heldur reiknum við út orkuþörf hvers og eins, svo þú fáir það sem þú þarft miðað við hæð þína, þyngd, kyn, aldur, hreyfingu á viku og markmið.

Þannig eru meiri líkur á því að þú náir sem bestum árangri með skyn samlegum hætti, lærir á skammtastærðir þínar og venur þig á að borða reglulega.

HeilsuAskur býður upp á 7 afhendingarstaði um allt höfuðborgarsvæðið, svo þú getir nálgast HeilsuAskinn þinn á þægilegan hátt um kl. 11 hvern dag.

Við bjóðum einnig upp á heimsendingu gegn gjaldi.
Þú getur valið um HeilsuAsk með öllum máltíðum dagsins (5 máltíðir) eða allar máltíðir nema kvöldverð.

Hér má sjá nánari upplýsingar um tilboðið sem þátttakendur á námskeiðum hjá World Class geta nýtt sér.

Sjá nánar um Heilsuaskinn á heilsuaskur.is


Fréttir eftir mánuðum


Næstu tímar


Þetta vefsvæði byggir á Eplica