Fréttir

Fyrirsagnalisti

Laugavegsakademian

27.2.2012 : Laugavegsakademían – æfingar fyrir Laugavegshlaupið 14. Júlí 2012

Stofnfundur í Laugum á hlaupársdag, 29.febrúar,  kl. 19:15.  Laugaskokkarar,  sem hafa hug á því að taka þátt í  Laugavegshlaupinu í júlí eða sambærilegum utanvegahlaupum, ráðgera að setja á fót undirbúningshóp af því tilefni, og hefur hann hlotið nafnið Laugavegsakademían.

crossfit_vetrarleikar_01

27.2.2012 : CrossFit námskeið hefjast 5. mars

Næstu námskeið hjá CrossFit námskeið hjá CrossFit Iceland hefjast 5. mars n.k.  CrossFit Iceland rekur nú tvær starfstöðvar, í World Class Kringlunni og Egilshöll.   Nánari upplýsingar og skráning á CrossFit námskeið er að finna hér á síðunni.

Turnhlaup

22.2.2012 : Tröppuhlaupsáskorun World Class 25. febrúar

Hlaupið verður niður frá World Class Turninum (15. hæð), niður stigana og upp svokallaðan „Himnastiga“, upp á Digraneshæð og til baka.  Samtals um 1.000 tröppur!   Þátttaka er ókeypis og stendur öllum til boða.  Komdu og láttu sjá þig!

bubbi

22.2.2012 : Fyrirlestur um samspil líkama og sálar

Guðbjörn Gunnarsson einkaþjálfari og markþjálfi heldur fyrirlestur í Laugum fimmtudag 23. febrúar kl. 18:00 þar sem hann fjallar um námskeið sitt, Mind and Body og fer yfir lykilatriði varðandi samspil hugar og líkama til að ná hámarksárangri.

Laugaskokk Birgir Rakel

21.2.2012 : Styrktarþjálfun hlaupara

Fræðslufundaröð Laugaskokks og World Class um málefni tengd hlaupum og hlaupaþjálfun verður fram haldið veturinn 2011- 2012. Fimmti fundur vetrarins er helgaður styrktarþjálfun hlaupara, kynningu á hlaupahópnum Laugaskokki og æfingaáætlun hópsins.  Fundurinn fer fram í Laugum miðvikudag 22. febrúar kl. 20:00 - aðgangur ókeypis og allir velkomnir!

crossfitleikar2012

20.2.2012 : CrossFit Leikar 2012 um helgina

Um helgina fóru fram CrossFit leikarnir, mótið var allt hið glæsilegasta með um 460 keppendur, 1.500 áhorfendur og 100 starfsmenn.  Á mótinu var CrossFit Iceland með 40 keppendur skráða til leiks.  Alls kepptu 32 lið á mótinu og besti árangur náðist einmitt í liðakeppni þar sem strákaliðið náði 6. sæti. Frábær árangur það.

Inniþraut

18.2.2012 : 44 kepptu í Inni-Tvíþraut World Class og Ægis-Þríþrautar í dag

Keppendur syntu 500m og hlupu 5 kílómetra á. Keppni var hörð og mjótt var á munum, ekki síðst í sveitakeppni þar sem úrslit réðust á sekúndum.  Birna Björnsdóttir vann með yfirburðum í flokki 39 ára og yngri, eða rúmum 6 mínútum á undan næsta keppanda.

crossfit_lyfta

17.2.2012 : CrossFitleikar 2012

Crossfit Leikarnir verða haldnir í Kaplakrika á morgun, laugardaginn 18.febrúar. Alls eru um 480 einstaklingar skráðir til leiks en þar af verða um 40 keppendur frá Crossfit Iceland. Mótið stendur frá kl. 9:00 til að verða 16:00 og aðgangur er ókeypis og því tilvalið að líta inn og fylgjast með einu flottasta þrekmóti sem haldið hefur verið á Íslandi.

kona í nuddi

15.2.2012 : Konudagurinn, 19. febrúar

Í tilefni konudagsins, 19. febrúar n.k., verður tveir fyrir einn tilboð í Baðstofuna og korthöfum í Baðstofu býðst að taka með sér gest í Baðstofuna án endurgjalds. Einnig verður Laugar Spa með glæsileg tilboð í valdar meðferðir og nudd.

Lóðaæfing hóptími

10.2.2012 : Næstu námskeið hefjast 20. febrúar n.k.

Skráning er í fullum gangi á námskeið sem hefjast 20. febrúar.  Mikið úrval námskeiða í boði, sannarlega eitthvað fyrir alla!  Skráðu þig í dag!

Valentínusardagurinn

10.2.2012 : Eigðu góðan dag með elskunni þinni á Valentínusardaginn

Valentínusardagurinn er haldinn 14. febrúar ár hvert og munum við af því tilefni bjóða upp á tveir fyrir einn í Baðstofu og með öllum réttum á smáréttaseðli Baðstofunnar fylgir Ástarkaka elskhugans.  Laugar Spa er einnig með tilboð á dekri af þessu tilefni.

inniþraut

8.2.2012 : Inni-Tvíþraut í Laugum 18. febrúar n.k., 500m sund og 5km hlaup

Ægir-Þríþraut og World Class halda inni-Tvíþraut laugardaginn 18. febrúar n.k. kl. 13:00. Um er að ræða 500m sund og 5km hlaup. Keppt verður í eldri og yngri flokkum auk liðakeppni. Veitt verða sérstök nýliðaverðlaun.

3.2.2012 : Hóptímar í Egilshöll byrja 6. febrúar

Með tilkomu World Class í Egilshöll gefst okkur tækifæri að auka enn við úrval hóptíma hjá okkur.  Hægt verður að sækja hóptíma í Egilshöll frá mánudeginum 6. febrúar.  Um er að ræða bæði opna hóptíma og CrossFit námskeið. Tímatafla World Class í Egilshöll
framadagar2012-00

1.2.2012 : World Class á Framadögum 2012

Framadagar eru árlegur viðburður í háskólalífinu þar sem helstu fyrirtæki landsins kynna starfsemi sína fyrir háskólanemendum. Framadagar voru haldnir í dag, 18. árið í röð.  World Class var með kynningu í Háskólanum í Reykjavík.  Dagurinn var einstaklega vel heppnaður og þátttaka frábær.  Takk fyrir okkur!

Egilshöll

1.2.2012 : World Class opnar í Egilshöll

Ekkert startgjald. Engin binding.

  World Class mun opna heilsuræktarstöð í Egilshöll mánudaginn 6. febrúar.  „Í stöðinni er heilsuræktarsalur en einnig verður aðstaða fyrir CrossFit og Hot Yoga.“ Segir Björn Leifsson framkvæmdastjóri World Class.  „CrossFit hefur verið gífurlega vinsælt hjá okkur og aðstaðan í Egilshöll er kærkomin viðbót við góða CrossFit aðstöðu okkar í Kringlunni“ segir Björn ennfremur.

1.2.2012 : Nýtt og betra líf á nýju ári

Skyndilausnir, eins og megrunakúrar, tilheyra ört vaxandi iðnaði í dag. Eftir því sem þyngdartapið er meira því meiri ásókn er í fæðið, en í raun þá orsaka þessir megrunarkúrar m.a. orkuleysi, bælingu á efnaskiptum og ónæmiskerfi líkamans ásamt því að draga úr sjálfstrausti viðkomandi einstaklinga. Námskeiðið „Nýtt og léttara líf á nýju ári“ er námskeið þar sem áhersla er lögð á að auka bæði andlega og líkamlega vellíðan. Á námskeiðinu lærir þú að virkja mátt hugans til að ná settu marki og um leið lærir þú einfalda og þægilega leið að breyttum lífsstíl.



Næstu tímar

Næstu námskeið