Fréttir

Fyrirsagnalisti

11.5.2012 : Mæðradagurinn 13. maí

Í tilefni af mæðradeginum verður Laugar Spa með glæsileg tilboð. Meðal annars verður tveir-fyrir-einn tilboð í Baðstofuna, verð kr. 4.990,- í stað kr. 9.980.

4.5.2012 : Hjólaferð 17. maí - Nesjavallahringur

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins í samstarfi við World Class kynna hjólaferð á uppstigningardag 17. maí n.k.  Hjólaður verður Nesjavallahringurinn, eða um 65 km. Með í för verður strætisvagn frá slökkviliðinu þar sem hægt verður að hvíla sig á leiðinni eða nærast.  Laugar Café og Vífilfell munu sjá hjólafólki fyrir orku á leiðinni.  Skráningargjald í ferðina er aðeins kr. 1.000.

sumar_20539280

30.4.2012 : Sumartilboð World Class

Nældu þér í heilsuræktarkort á sumartilboði í allar 10 stöðvar World Class.  Mánaðarkort á kr. 6.990.  Sumartilboðið tekur gildi 1. maí.

graenn_april01

30.4.2012 : Hugað að umhverfinu

Til að ljúka Grænum apríl tóku starfsmenn World Class stöðvanna sér hlé frá venjulegum störfum um stund til að huga að nánasta umhverfi.  Hér má sjá nokkra af starfsmönnum í Laugum vera við þrifnaðarstörf.

30.4.2012 : Verkalýðsdagurinn, 1. maí

Þann 1. maí er aðeins opið í Laugum frá kl. 08:00-22:00. 
Hóptímar falla niður og barnagæsla verður lokuð.

fotlun-utskrift-nings03

27.4.2012 : 14 vikna heilsunámskeiði fyrir fólk með fötlun lauk í dag með afhendingu viðurkenninga

Í dag lauk tveimur stórskemmtilegum 14 vikna heilsunámskeiðum fyrir fólk með fötlun í World Class Laugum.  Námskeiðið gekk út á að stuðla að aukinni hreyfingu og efla eigið hreysti með skemmtilegum og fjölbreyttum æfingum.

Turnhlaup

24.4.2012 : Tröppuhlaup World Class í Turninum Kópavogi

Tröppuhlaupsáskorun World Class heldur áfram. Næsta hlaup verður n.k. laugardag kl. 11:00.  Hlaupið verður niður 15 hæðir í Turninum í Kópavogi og upp svokallaðan Himnastiga í Kópavogsdalnum og til baka, samtals um 1.000 tröppur.  Mæting í World Class Turninum eigi síðar en 10:45, þátttaka ókeypis og allir velkomnir!

hlaup

24.4.2012 : Hlaupanámskeið fyrir byrjendur

30. apríl n.k. hefjast hlaupanámskeið fyrir byrjendur, námskeiðin verða haldin í World Class Laugum og í Mosfellsbæ. Um er að ræða 6 vikna námskeið og kostar einungis kr. 7.170 fyrir korthafa hjá World Class.  Skráning í fullum gangi!

johanningigunnarsson

21.4.2012 : „Þú getur þetta - hver sagði að þetta væri auðvelt?„

Er nafnið á fyrirlestri í fræðslufundaröð Laugaskokks og World Class sem verður haldinn í Laugum mánudaginn 23. apríl kl. 20:00.  Jóhann Ingi Gunnarsson sálfræðingur og fyrrverandi landsliðsþjálfari sér um fyrirlesturinn og er hann ókeypis og allir eru hjartanlega velkomnir!

20.4.2012 : Fitnessform, skráning í fullum gangi

Á mánudag n.k. hefst í Laugum námskeið sem kallast Fitnessform.  Kennarar eru margfaldir verðlaunahafar í fitness, þær Kristbjörg Jónasdóttir og Aðalheiður Ýr Ólafsdóttir.  Tilvalið fyrri þær stelpur sem vilja koma sér í bikiníform fyrir sumarið með skemmtilegum æfingum og í frábærum félagsskap.

18.4.2012 : Sumardagurinn fyrsti

Við bendum á Zumbamaraþon frá 10:30-12:00 í Laugum.  CrossFit WOD tímar verða kenndir kl. 10:00 og 11:00 í Kringlunni. Einnig kenndir tímar á grunnnámskeiði í CrossFit þennan dag.

17.4.2012 : Opnunartími sumardaginn fyrsta og 1. maí

Á sumardaginn fyrsta verða stöðvarnar í Laugum, World Class Seltjarnarnesi og Mosfellsbæ opnar. Fyrsta maí verður opið í Laugum. Einnig viljum við benda á að Næturopnun Kringlunnar verður virk þessa hátíðisdaga.

Andlitsnudd

13.4.2012 : Afsláttur í Laugar Spa fyrir korthafa hjá World Class

Laugarspa býður upp á fyrsta flokks þjónustu og gott úrval almennra meðferða s.s. andlitsbað, vax, litun og plokkun auk sérmeðferða fyrir einstaklinga og pör.  Af vinsælum meðferðum má nefna Epsom saltskrúbb, súkkulaðinudd, paranudd og andlitsbað. Nú býðst korthöfum World Class 10% afsláttur af vörum og þjónustu hjá Laugar Spa og korthöfum í Baðstofu býðst nú 15% afsláttur.

urval-namskeida-april2012

5.4.2012 : Fjölbreytt námskeið í boði - næstu námskeið hefjast 11. og 16. apríl

Við viljum benda á hagstæðari verð fyrir korthafa hjá World Class.  Til að geta nýtt sér hagstæðara námskeiðaverð þarf  viðkomandi að hafa gilt kort fram yfir námskeiðið. Skráning í fullum gangi hér á vefsíðunni og í næstu afgreiðslu World Class.

4.4.2012 : Hóptímar um páskana

Hér má sjá nánar hóptíma um páskana í ár.

30.3.2012 : Sigurvegarar í póstlistaleik

Í vikunni vorum við með leik á póstlistanum okkar þar sem tveir heppnir gátu unnið sér inn ókeypis CrossFit námskeið.  Sigurvegarnir að þessu sinni eru:
Erna Stefánsdóttir og Thelma Björk Árnadóttir og óskum við þeim hjartanlega til hamingju. Ef þú vilt eiga kost á því að fá ókeypis námskeið og fá send tilboð frá okkur ásamt góðum fróðleik.  Skráðu þig á póstlistann okkar hér á forsíðunni.

30.3.2012 : Páskaopnun World Class 2012

Yfirlit afgreiðslutíma World Class stöðvanna um páskanna má sjá hér nánar í fréttinni.  Verið að er að útbúa lista yfir hóptíma sem verða í gangi yfir páskana og verður hann birtur fljótlega eftir helgi.

turnhlaup

30.3.2012 : Turn og 1.000 tröppur!

Tröppuhlaupsáskorun World Class heldur áfram. Næsta hlaup verður á morgun laugardag, 31. mars kl. 11:00.  Hlaupið verður niður 13 hæðir á Turninum í Kópavogi og upp svokallaðan Himnastiga í Kópavogsdalnum og til baka, samtals um 1.000 tröppur.  Mæting í World Class Turninum eigi síðar en 10:45, þátttaka ókeypis og allir velkomnir!

30.3.2012 : Breyting á CrossFit námskeiðum

Þau CrossFit námskeið sem áttu að hefjast 2. apríl n.k. munu hefjast í stað þann 11. apríl.  Tryggðu þér pláss á CrossFit námskeiði strax eftir páska, skráning er í fullum gangi hér á heimasíðunni og í næstu afgreiðslu World Class.

23.3.2012 : Opinn tími í Herþjálfun mánudaginn 26. mars

Herþjálfun er frábær leið til að komast í toppform og hafa gaman að því!
Leitast er við að blanda saman ólíkum æfingakerfum og að hafa æfingarnar sem fjölbreyttastar og skemmtilegastar.  Æfingarnar fara fram í World Class Kringlunni við frábærar aðstæður í CrossFit salnum og einnig utandyra. Opinn tími mánudaginn 26. mars kl. 19:30 í World Class Kringlunni, allir velkomnir!

Wod Kortið gjaldtaka

14.3.2012 : Gjaldskrárbreyting í CrossFit

World Class mun frá 1. apríl n.k. taka upp gjaldtöku fyrir WOD tíma í CrossFit.  Hjá þessari gjaldtöku verður því miður ekki komist, bæði til að viðhalda gæðum og eiga möguleika á að auka þau. CrossFit Iceland rekur nú tvær starfsstöðvar, í Kringlunni og Egilshöll, og er með samtals 30 WOD tíma í viku hverri sem iðkendur hafa úr að velja.

13.3.2012 : Klæðaburður í stöðvum World Class

Við ástundum æfinga er æskilegt að vera í þar til gerðum fatnaði sem ætlaður er til æfingaiðkunar. Þetta á einnig við um skófatnað. Ekki er leyfilegt að vera í tækjasal eða öðrum sölum á sokkunum, undantekningar eru yoga tímar. Þó er æskilegt að viðskiptavinir gangi um á æfingaskóm eða inniskóm að Yoga sölum.    

Þar til gerð handklæði eru til staðar á hverri stöð sem viðskiptavinir geta notað til að þurrka svita og breiða undir þvalan líkama við æfingar þannig að aðrir viðskiptavinir geti gengið að tækjum og bekkjum þurrum.

Heilbrigðiseftirlit World Class

11.3.2012 : Hot Yoga í Egilshöll

Opnir Hot Yoga tímar hefjast í Egilshöll mánudaginn 12. mars.  Tímarnir standa öllum korthöfum World Class til boða.  Vegna mikillar aðsóknar í Hot Yoga tímana munum við afhenda miða í tímana 30 mínútum áður en tíminn hefst.  Vinsamlegast athugið, það er nauðsynlegt að iðkendur mæti með stórt handklæði í tímann.

8.3.2012 : Allir Zumbatímar í World Class opnir hóptímar

Nú eru allir Zumbatímar hjá World Class opnir hóptímar og standa öllum viðskiptavinum til boða án endurgjalds.

7.3.2012 : World Class leitar að góðum hóptímakennurum í Hot Yoga og Spinning

Við leitum að Hot Yoga kennara og Spinning kennara til að bætast í hóp frábærra kennara hjá okkur.  
DagbjortGudbrandsdottir

5.3.2012 : Frábær árangur Íslenskra fitnesskvenna á Arnold Sports Festival

Fimm íslendingar unnu til verðlauna á Arnold Sports Festival mótinu sem haldið var um helgina í Columbus, Ohio í Bandaríkjunum. Dagbjört Guðbrandsdóttir sigraði í sínum flokki í módelfitness og Aðalheiður Ýr Ólafsdóttir hafnaði í öðru sæti í sama flokki.

ari-arsaelsson

5.3.2012 : „Úthaldið skiptir einna mestu í boxinu“

Box er vel til þess fallið að auka úthald fólks í bland við styrktaræfingar. Hnefaleikakappinn Ari Þór Ársælsson nýtir áralanga reynslu sína sem boxari þess að koma fólki í gott form á fitnessboxnámskeiðum. Fitnessbox er fyrir fólk á öllum aldri og fer hver og einn þar á sínum hraða. 

Zumba

2.3.2012 : Opnir Zumbatímar um helgina

Um helgina verða 6 opnir Zumbatímar um helgina. Opið fyrir alla viðskiptavini World Class
Laugavegsakademian

27.2.2012 : Laugavegsakademían – æfingar fyrir Laugavegshlaupið 14. Júlí 2012

Stofnfundur í Laugum á hlaupársdag, 29.febrúar,  kl. 19:15.  Laugaskokkarar,  sem hafa hug á því að taka þátt í  Laugavegshlaupinu í júlí eða sambærilegum utanvegahlaupum, ráðgera að setja á fót undirbúningshóp af því tilefni, og hefur hann hlotið nafnið Laugavegsakademían.

crossfit_vetrarleikar_01

27.2.2012 : CrossFit námskeið hefjast 5. mars

Næstu námskeið hjá CrossFit námskeið hjá CrossFit Iceland hefjast 5. mars n.k.  CrossFit Iceland rekur nú tvær starfstöðvar, í World Class Kringlunni og Egilshöll.   Nánari upplýsingar og skráning á CrossFit námskeið er að finna hér á síðunni.

Turnhlaup

22.2.2012 : Tröppuhlaupsáskorun World Class 25. febrúar

Hlaupið verður niður frá World Class Turninum (15. hæð), niður stigana og upp svokallaðan „Himnastiga“, upp á Digraneshæð og til baka.  Samtals um 1.000 tröppur!   Þátttaka er ókeypis og stendur öllum til boða.  Komdu og láttu sjá þig!

bubbi

22.2.2012 : Fyrirlestur um samspil líkama og sálar

Guðbjörn Gunnarsson einkaþjálfari og markþjálfi heldur fyrirlestur í Laugum fimmtudag 23. febrúar kl. 18:00 þar sem hann fjallar um námskeið sitt, Mind and Body og fer yfir lykilatriði varðandi samspil hugar og líkama til að ná hámarksárangri.

Laugaskokk Birgir Rakel

21.2.2012 : Styrktarþjálfun hlaupara

Fræðslufundaröð Laugaskokks og World Class um málefni tengd hlaupum og hlaupaþjálfun verður fram haldið veturinn 2011- 2012. Fimmti fundur vetrarins er helgaður styrktarþjálfun hlaupara, kynningu á hlaupahópnum Laugaskokki og æfingaáætlun hópsins.  Fundurinn fer fram í Laugum miðvikudag 22. febrúar kl. 20:00 - aðgangur ókeypis og allir velkomnir!

crossfitleikar2012

20.2.2012 : CrossFit Leikar 2012 um helgina

Um helgina fóru fram CrossFit leikarnir, mótið var allt hið glæsilegasta með um 460 keppendur, 1.500 áhorfendur og 100 starfsmenn.  Á mótinu var CrossFit Iceland með 40 keppendur skráða til leiks.  Alls kepptu 32 lið á mótinu og besti árangur náðist einmitt í liðakeppni þar sem strákaliðið náði 6. sæti. Frábær árangur það.

Inniþraut

18.2.2012 : 44 kepptu í Inni-Tvíþraut World Class og Ægis-Þríþrautar í dag

Keppendur syntu 500m og hlupu 5 kílómetra á. Keppni var hörð og mjótt var á munum, ekki síðst í sveitakeppni þar sem úrslit réðust á sekúndum.  Birna Björnsdóttir vann með yfirburðum í flokki 39 ára og yngri, eða rúmum 6 mínútum á undan næsta keppanda.

crossfit_lyfta

17.2.2012 : CrossFitleikar 2012

Crossfit Leikarnir verða haldnir í Kaplakrika á morgun, laugardaginn 18.febrúar. Alls eru um 480 einstaklingar skráðir til leiks en þar af verða um 40 keppendur frá Crossfit Iceland. Mótið stendur frá kl. 9:00 til að verða 16:00 og aðgangur er ókeypis og því tilvalið að líta inn og fylgjast með einu flottasta þrekmóti sem haldið hefur verið á Íslandi.

kona í nuddi

15.2.2012 : Konudagurinn, 19. febrúar

Í tilefni konudagsins, 19. febrúar n.k., verður tveir fyrir einn tilboð í Baðstofuna og korthöfum í Baðstofu býðst að taka með sér gest í Baðstofuna án endurgjalds. Einnig verður Laugar Spa með glæsileg tilboð í valdar meðferðir og nudd.

Lóðaæfing hóptími

10.2.2012 : Næstu námskeið hefjast 20. febrúar n.k.

Skráning er í fullum gangi á námskeið sem hefjast 20. febrúar.  Mikið úrval námskeiða í boði, sannarlega eitthvað fyrir alla!  Skráðu þig í dag!

Valentínusardagurinn

10.2.2012 : Eigðu góðan dag með elskunni þinni á Valentínusardaginn

Valentínusardagurinn er haldinn 14. febrúar ár hvert og munum við af því tilefni bjóða upp á tveir fyrir einn í Baðstofu og með öllum réttum á smáréttaseðli Baðstofunnar fylgir Ástarkaka elskhugans.  Laugar Spa er einnig með tilboð á dekri af þessu tilefni.

inniþraut

8.2.2012 : Inni-Tvíþraut í Laugum 18. febrúar n.k., 500m sund og 5km hlaup

Ægir-Þríþraut og World Class halda inni-Tvíþraut laugardaginn 18. febrúar n.k. kl. 13:00. Um er að ræða 500m sund og 5km hlaup. Keppt verður í eldri og yngri flokkum auk liðakeppni. Veitt verða sérstök nýliðaverðlaun.

3.2.2012 : Hóptímar í Egilshöll byrja 6. febrúar

Með tilkomu World Class í Egilshöll gefst okkur tækifæri að auka enn við úrval hóptíma hjá okkur.  Hægt verður að sækja hóptíma í Egilshöll frá mánudeginum 6. febrúar.  Um er að ræða bæði opna hóptíma og CrossFit námskeið. Tímatafla World Class í Egilshöll
framadagar2012-00

1.2.2012 : World Class á Framadögum 2012

Framadagar eru árlegur viðburður í háskólalífinu þar sem helstu fyrirtæki landsins kynna starfsemi sína fyrir háskólanemendum. Framadagar voru haldnir í dag, 18. árið í röð.  World Class var með kynningu í Háskólanum í Reykjavík.  Dagurinn var einstaklega vel heppnaður og þátttaka frábær.  Takk fyrir okkur!

Egilshöll

1.2.2012 : World Class opnar í Egilshöll

Ekkert startgjald. Engin binding.

  World Class mun opna heilsuræktarstöð í Egilshöll mánudaginn 6. febrúar.  „Í stöðinni er heilsuræktarsalur en einnig verður aðstaða fyrir CrossFit og Hot Yoga.“ Segir Björn Leifsson framkvæmdastjóri World Class.  „CrossFit hefur verið gífurlega vinsælt hjá okkur og aðstaðan í Egilshöll er kærkomin viðbót við góða CrossFit aðstöðu okkar í Kringlunni“ segir Björn ennfremur.

1.2.2012 : Nýtt og betra líf á nýju ári

Skyndilausnir, eins og megrunakúrar, tilheyra ört vaxandi iðnaði í dag. Eftir því sem þyngdartapið er meira því meiri ásókn er í fæðið, en í raun þá orsaka þessir megrunarkúrar m.a. orkuleysi, bælingu á efnaskiptum og ónæmiskerfi líkamans ásamt því að draga úr sjálfstrausti viðkomandi einstaklinga. Námskeiðið „Nýtt og léttara líf á nýju ári“ er námskeið þar sem áhersla er lögð á að auka bæði andlega og líkamlega vellíðan. Á námskeiðinu lærir þú að virkja mátt hugans til að ná settu marki og um leið lærir þú einfalda og þægilega leið að breyttum lífsstíl.

crossfit_vetrarleikar_01

30.1.2012 : Ný Crossfit námskeið að hefjast

Nú er rétti tíminn til að skrá sig á Crossfit námskeið hjá Crossfit Iceland en síðast þá fylltust öll 5 námskeiðin sem í boði voru.   Næstu námskeið hefjast 6.febrúar og er skráning hafin í síma 553-0000 eða í næstu afgreiðslu World Class. Eins er hægt að skrá sig á netinu (ofarlega hægra megin á forsíðunni).

Turnhlaup

20.1.2012 : Góð þátttaka í tröppuhlaupsáskorun World Class í dag

Góð þátttaka var í tröppuhlaupsáskorun World Class í dag þrátt fyrir veður og krefjandi aðstæður.  Í tröppuhlaupinu er hlaupið niður Turninn frá 15. hæð og upp svokallaðan „Himnastiga“ í Kópavogsdal, samtals um 1.000 tröppur.  Tröppuhlaupið verður mánaðarlegur viðburður hjá okkur og næsta hlaup verður laugardaginn 25. febrúar kl. 11:00.

19.1.2012 : Tröppuhlaupsáskorun World Class 20. janúar kl. 12:00

Á næsta föstudag verður hlaupið frá World Class Turninum, niður stigana þar og upp svokallaðan „Himnastiga“, sem er í Kópavogsdalnum, upp á Digranesheiði og til baka. Samtals um 1.000 tröppur! Þátttaka er ókeypis, mæting í World Class Turninum. Boðið verður upp á hressingu frá Laugar Café og Ölgerðinni að hlaupi loknu. Hlökkum til að sjá þig!
Maður Nudd

19.1.2012 : Bóndadagurinn 2012

Í tilefni bóndagsins, 20. janúar n.k., bjóðum við korthöfum í Baðstofu að taka með sér gest í Baðstofuna án endurgjalds.  Einnig verður tveir fyrir einn tilboð í Baðstofuna og á veitingastað Baðstofunnar verður tilboð á kengúrusteik í tilefni dagsins.  Laugar Spa býður á bóndaginn 15% afslátt á gjafabréfum í valdar meðferðir.

17.1.2012 : Langar þig að hlaupa Laugavegshlaup í sumar?

Laugaskokk, hlaupahópur World Class, stendur fyrir fróðlegum og áhugaverðum fyrirlestri í World Class Laugum miðvikudaginn 18.janúar kl 20. Þorbergur Ingi Jónsson, sem til margra ára hefur verið einn af fremstu lang- og millivegahlaupurum landsins, fjallar um undirbúning og keppni í Laugavegshlaupinu og öðrum utanvegahlaupum. Ekki láta þennan fyrirlestur framhjá þér fara og mættu í Laugar miðvikudaginn 18.janúar kl 20

Helga Marín Bergsteinsdóttir

16.1.2012 : Áramótaheitin og hvernig á að standa við þau

Helga Marin heilsufræðingur og markþjálfi sem búsett er í Dubai er komin hingað til lands til að efla heilsu og hugarfar Íslendinga.  Hún segir margar ásæður fyrir því að fólk standi ekki við áramótaheitin þegar að kemur að því að snúa við lífsstílnum.  Helga ætlar að byrja árið með að bjóða Íslendingum upp á ókeypis fyrirlestur í World Class fimmtudaginn 19. janúar kl 18.30.

heilsuaskur-logo

13.1.2012 : World Class og Mataskur í samstarfi

Fyrirtækið MatAskur ehf sem framleiðir HeilsuAsk vill í samstarfi við World Class bjóða öllum á námskeiðum WC einstakt tilboð á HeilsuAski á meðan á námskeiðinu stendur.

10.1.2012 : Ókeypis kynningartímar í Zumba Fitness og Zumba Toning

Í dag, þriðjudag 10. janúar, verða ókeypis kynningartími í dag í Zumba Fitness og einnig í Zumba Toning.  Zumba Fitness er kl. 17:35-18:35 í Laugum og Zumba Toning er kl. 19:40-20:40 og einnig í Laugum. Komdu og prófaðu!
Zumba

9.1.2012 : 14 Zumbatímar í boði í viku hverri!

Ef þú ert skráð/ur á Zumba námskeið hér í World Class hefur þú um 14 Zumbatíma að velja í viku hverri!  Ef þú ert á einu Zumba námskeiði áttu kost á því að fara inn á tíma á öðru námskeiði án endurgjalds.

9.1.2012 : Vinningshafar í lukkuleik póstlista

Um helgina vorum við með lukkuleik á póslistanum hjá okkur þar sem fimm heppnir áttu möguleika á að vinna ókeypis námskeið að þeirra vali.  Við þökkum frábæra þátttöku og óskum vinningshöfum til hamingju :)
Aðalsíða - Spöng

9.1.2012 : Viðgerðum lokið á sturtum í Spöng

Undanfarið hafa staðið yfir viðgerðir á sturtum í World Class Spönginni.  Þeim viðgerðum er nú lokið.  World Class Spönginni er 1500m2 með fullkomnum tækjasal, leikfimissal, einum fullkomnasta spinningsal landsins og barnagæslu. Hér má sjá opnunartímann í Spönginni.

postlisti

6.1.2012 : Viltu vinna þér inn ókeypis námskeið ?

Viltu vinna þér inn ókeypis námskeið ?  Við verðum með lukkuleik á póstlistanum hjá okkur í dag og um helgina.  Það eina sem þú þarft að gera til að geta unnið er að vera á póstlistanum okkar og velja það námskeið sem þú hefur áhuga á að vinna. Við munum draga 5 heppna úr hópi þátttakenda og gefa þeim ókeypis námskeið að eigin vali.  Ef þú ert ekki á póstlistanum þá skaltu endilega skrá þig strax í dag.

6.1.2012 : Þrettándinn, 6. janúar.

Í dag falla niður Hot Yoga tímar á Seltjarnarnesi, í Mosfellsbæ falla niður tíma í föstudagsfjör (kl. 17:00) og opinn Zumbatími (kl.17:30).
Brian Culkin

5.1.2012 : Tilboð í dag, fimmtudag, á helgarnámskeið Brian Culkin

Í dag, fimmtudag, er sérstakt tilboð á helgar jóganámskeið Brian Culkin.  Ef skráning fer fram í dag fæst námskeiðið á kr. 19.000 í stað kr. 29.000.  Sjá nánar um námskeiðið og skráningu.

Æfing á bolta

5.1.2012 : Glæsilegt úrval námskeiða að hefjast 9. janúar

Mikið úrval námskeiða námskeiða er að hefjast núna 9. janúar n.k. Meðal nýjunga eru Core X, Zumba Toning og Mind and Body - ný viðmið.  Skráning í fullum gangi hér á síðunni og í síma 553-0000

2.1.2012 : Gleðilegt nýtt ár!  Ný námskeið hefjast 9. janúar n.k.

Við óskum að þú eigir gott og heilsuríkt ár.  Við viljum benda á glæsilegt úrval námskeiða sem hefjast 9. janúar n.k.


Næstu tímar

Næstu námskeið