Í tilefni af mæðradeginum verður Laugar Spa með glæsileg tilboð. Meðal annars verður tveir-fyrir-einn tilboð í Baðstofuna, verð kr. 4.990,- í stað kr. 9.980.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins í samstarfi við World Class kynna hjólaferð á uppstigningardag 17. maí n.k. Hjólaður verður Nesjavallahringurinn, eða um 65 km. Með í för verður strætisvagn frá slökkviliðinu þar sem hægt verður að hvíla sig á leiðinni eða nærast. Laugar Café og Vífilfell munu sjá hjólafólki fyrir orku á leiðinni. Skráningargjald í ferðina er aðeins kr. 1.000.
Nældu þér í heilsuræktarkort á sumartilboði í allar 10 stöðvar World Class. Mánaðarkort á kr. 6.990. Sumartilboðið tekur gildi 1. maí.
Til að ljúka Grænum apríl tóku starfsmenn World Class stöðvanna sér hlé frá venjulegum störfum um stund til að huga að nánasta umhverfi. Hér má sjá nokkra af starfsmönnum í Laugum vera við þrifnaðarstörf.
Þann 1. maí er aðeins opið í Laugum frá kl. 08:00-22:00.
Hóptímar falla niður og barnagæsla verður lokuð.
Í dag lauk tveimur stórskemmtilegum 14 vikna heilsunámskeiðum fyrir fólk með fötlun í World Class Laugum. Námskeiðið gekk út á að stuðla að aukinni hreyfingu og efla eigið hreysti með skemmtilegum og fjölbreyttum æfingum.
Tröppuhlaupsáskorun World Class heldur áfram. Næsta hlaup verður n.k. laugardag kl. 11:00. Hlaupið verður niður 15 hæðir í Turninum í Kópavogi og upp svokallaðan Himnastiga í Kópavogsdalnum og til baka, samtals um 1.000 tröppur. Mæting í World Class Turninum eigi síðar en 10:45, þátttaka ókeypis og allir velkomnir!
30. apríl n.k. hefjast hlaupanámskeið fyrir byrjendur, námskeiðin verða haldin í World Class Laugum og í Mosfellsbæ. Um er að ræða 6 vikna námskeið og kostar einungis kr. 7.170 fyrir korthafa hjá World Class. Skráning í fullum gangi!
Er nafnið á fyrirlestri í fræðslufundaröð Laugaskokks og World Class sem verður haldinn í Laugum mánudaginn 23. apríl kl. 20:00. Jóhann Ingi Gunnarsson sálfræðingur og fyrrverandi landsliðsþjálfari sér um fyrirlesturinn og er hann ókeypis og allir eru hjartanlega velkomnir!