Fréttir

Fyrirsagnalisti

Turnhlaup

22.2.2012 : Tröppuhlaupsáskorun World Class 25. febrúar

Hlaupið verður niður frá World Class Turninum (15. hæð), niður stigana og upp svokallaðan „Himnastiga“, upp á Digraneshæð og til baka.  Samtals um 1.000 tröppur!   Þátttaka er ókeypis og stendur öllum til boða.  Komdu og láttu sjá þig!

 
bubbi

22.2.2012 : Fyrirlestur um samspil líkama og sálar

Guðbjörn Gunnarsson einkaþjálfari og markþjálfi heldur fyrirlestur í Laugum fimmtudag 23. febrúar kl. 18:00 þar sem hann fjallar um námskeið sitt, Mind and Body og fer yfir lykilatriði varðandi samspil hugar og líkama til að ná hámarksárangri.

 
Laugaskokk Birgir Rakel

21.2.2012 : Styrktarþjálfun hlaupara

Fræðslufundaröð Laugaskokks og World Class um málefni tengd hlaupum og hlaupaþjálfun verður fram haldið veturinn 2011- 2012. Fimmti fundur vetrarins er helgaður styrktarþjálfun hlaupara, kynningu á hlaupahópnum Laugaskokki og æfingaáætlun hópsins.  Fundurinn fer fram í Laugum miðvikudag 22. febrúar kl. 20:00 - aðgangur ókeypis og allir velkomnir!

 
crossfitleikar2012

20.2.2012 : CrossFit Leikar 2012 um helgina

Um helgina fóru fram CrossFit leikarnir, mótið var allt hið glæsilegasta með um 460 keppendur, 1.500 áhorfendur og 100 starfsmenn.  Á mótinu var CrossFit Iceland með 40 keppendur skráða til leiks.  Alls kepptu 32 lið á mótinu og besti árangur náðist einmitt í liðakeppni þar sem strákaliðið náði 6. sæti. Frábær árangur það.

 
Inniþraut

18.2.2012 : 44 kepptu í Inni-Tvíþraut World Class og Ægis-Þríþrautar í dag

Keppendur syntu 500m og hlupu 5 kílómetra á. Keppni var hörð og mjótt var á munum, ekki síðst í sveitakeppni þar sem úrslit réðust á sekúndum.  Birna Björnsdóttir vann með yfirburðum í flokki 39 ára og yngri, eða rúmum 6 mínútum á undan næsta keppanda.

 
crossfit_lyfta

17.2.2012 : CrossFitleikar 2012

Crossfit Leikarnir verða haldnir í Kaplakrika á morgun, laugardaginn 18.febrúar. Alls eru um 480 einstaklingar skráðir til leiks en þar af verða um 40 keppendur frá Crossfit Iceland. Mótið stendur frá kl. 9:00 til að verða 16:00 og aðgangur er ókeypis og því tilvalið að líta inn og fylgjast með einu flottasta þrekmóti sem haldið hefur verið á Íslandi.

 
kona í nuddi

15.2.2012 : Konudagurinn, 19. febrúar

Í tilefni konudagsins, 19. febrúar n.k., verður tveir fyrir einn tilboð í Baðstofuna og korthöfum í Baðstofu býðst að taka með sér gest í Baðstofuna án endurgjalds. Einnig verður Laugar Spa með glæsileg tilboð í valdar meðferðir og nudd.

 
Lóðaæfing hóptími

10.2.2012 : Næstu námskeið hefjast 20. febrúar n.k.

Skráning er í fullum gangi á námskeið sem hefjast 20. febrúar.  Mikið úrval námskeiða í boði, sannarlega eitthvað fyrir alla!  Skráðu þig í dag!

 
Valentínusardagurinn

10.2.2012 : Eigðu góðan dag með elskunni þinni á Valentínusardaginn

Valentínusardagurinn er haldinn 14. febrúar ár hvert og munum við af því tilefni bjóða upp á tveir fyrir einn í Baðstofu og með öllum réttum á smáréttaseðli Baðstofunnar fylgir Ástarkaka elskhugans.  Laugar Spa er einnig með tilboð á dekri af þessu tilefni.

 
inniþraut

8.2.2012 : Inni-Tvíþraut í Laugum 18. febrúar n.k., 500m sund og 5km hlaup

Ægir-Þríþraut og World Class halda inni-Tvíþraut laugardaginn 18. febrúar n.k. kl. 13:00. Um er að ræða 500m sund og 5km hlaup. Keppt verður í eldri og yngri flokkum auk liðakeppni. Veitt verða sérstök nýliðaverðlaun.

 

Fréttir eftir mánuðum


Næstu tímar


Þetta vefsvæði byggir á Eplica