Sjúkraþjálfun

Atlas Endurhæfing ehf og World Class hafa gert með sér samkomulag um faglega þjónustu á sviði sjúkraþjálfunar. Í World Class Laugum eru starfandi sjúkraþjálfarar á vegum Atlas Endurhæfingu, við þjálfun í tækjasal og við greiningu, meðhöndlun og endurhæfingu stoðkerfisvandamála. Á neðri hæð Lauga er að finna aðstöðu fyrir sjúkraþjálfara.

Starfssvið sjúkraþjálfara hjá World Class í Laugum er allt frá því að greina frávik í hreyfigetu fólks yfir í meðhöndlun stoðkerfisvandamála. Sjúkraþjálfarar fara í gegnum mjög nákvæma líkamsskoðun á sínum skjólstæðingum, meta líkamsstöðu, styrk, hreyfanleika og hreyfingar líkamans. Þegar um stoðkerfisvandamál eða endurhæfingu eftir meiðsli er að ræða nota sjúkraþjálfarar tækjasal World Class til þjálfunar ásamt Laugardalslaugina. Í Laugardalslauginni er í boði hlaupaþjálfun í vatni fyrir þá sem tímabundið er ráðlegt að hvíla frá þungaberandi álagi við æfingar.  Auk þess bjóða sjúkraþjálfarar World Class upp á mjólkursýrumælingar og ástandsmælingar fyrir íþróttafólk.

Nánari upplýsingar veitir Róbert sjúkraþjálfari í S.552 6600 eða á netfangið robert@atlasendurhaefing.is.


Næstu tímar

Næstu námskeið