Næringaráðgjöf og ástandsmat
Það er viðurkennt að árangur í heilsurækt byggir á samspili hugar og líkama. Einnig vitum við að holl næring er mikilvæg svo líkaminn starfi eðlilega og rétt mataræði skapar að minnsta kosti helming árangurs á móti hreyfingunni.
World Class býður uppá næringarráðgjöf sem byggir á 30 mínútna viðtali og eftirfylgni eftir þörfum með matardagbók og styttri viðtölum. Einnig er hægt að koma í reglubundið eftirlit þar sem ummál og fituprósenta er mælt og árangur metinn frá mánuði til mánaðar með útreikningum á hlutfalli vöðva og fitu. Með því má sjá hvort æfingarnar séu að skila tilætluðum árangri.
Tímapantanir fara fram í afgreiðslu Lauga S.553 0000 og á Seltjarnarnesi S.517 0608
Verð: kr. 3.500
Næringarfræðingar eru:
Fríða Rún Þórðardóttir - Laugar
Næringarráðgjafi MS, ISSA einkaþjálfari
Bertha María Ársælsdóttir - Seltjarnarnes
Matvæla og næringarfræðingur M.Sc.
