Þjónusta

Laugar spa

Laugar Spa er fyrsta flokks snyrti- og nuddstofa þar sem færstu fagmenn sjá til þess að veita gestum góða þjónustu og slökun frá amstri dagsins.  Unnið er með vörum frá Guerlain og Comfort Zone en þær snyrtivörur eru þekktar um allan heim.  Þær meðferðir sem í boði eru, eru samsettar af fornum fræðum og nútíma þekkingu í bland við þau gæði sem náttúran hefur að geyma.

Baðstofa Lauga

Laugar er fyrsta flokks fimm stjörnu heilsulind með baðstofu að evrópskri fyrirmynd þar sem slökunar- og lækningamáttur vatnsins er í hávegum hafður. Misheitar blautgufur og þurrgufur með mismunandi ilmum, nuddpottur með jarðsjó, heit og köld sjóböð og sérstakar fótalaugar. Sex metra breiður foss sem hægt er að baða sig undir. Fossinn er hannaður af Sigurði Guðmundsyni listamanni.


Í baðstofunni er alls sex gufur hver með sínu þema. Hver gufa hefur sinn einstaka ilm og má m.a. anda að sér sítrónu, piparmyntu og lavender svo eitthvað sé nefnt. Ákveðið þema einkennir þær og þar má m.a. heyra fugla- og lækjarnið, upplifa stjörnuhvolfið sem og sólarupprisu eða hverfa til austurrísku bjálkakofanna.


Þá er nuddpottur byggður úr graníti þar sem hægt er að láta þreytuna líða úr sér í nuddpotti með upphituðum jarðsjó eða hvíla þreyttar fætur í þar til gerðum fótlaugum. Þeir sem vilja ferska upplifun skella sér í heit og köld víxlböð í sérútbúnum klefum eða baða sig í 6 metra breiðum fossi lystilega hönnuðum af Sigurði Guðmundssyni listamanni. Handbragð og listasmíði Sigurðar er einstök og einkennist af handbragði meistara sem á sér engan líkan.

Hvíldarherbergi baðstofunnar er draumi líkast þar sem íslenskt landslag prýðir veggina ásamt kínversku graníti og listaverkum Sigurðar Guðmundssonar, að ógleymdum arninum sem prýðir miðju stofunnar.




Næstu tímar

Næstu námskeið