Heilsueftirlit World Class

Ef þú vilt fá góðan og mælanlegan árangur er heilsueftirlitið fyrir þig.

Þetta er aðhald hjá þjálfara í mánuð í senn og er fyrir fólk sem vill fylgjast náið með árangri sínum.

Innifalið í heilsueftirlitinu

Fyrsti tíminn er u.þ.b. 60-90 mínútna viðtal ásamt því að:

  • farið er yfir markmið þín og heilsuhandbók World Class
  • fitu- og ummálsmælingar eru framkvæmdar og blóðþrýstingur er mældur
  • Tekið er þolpróf
  • sérsniðin æfingaáætlun er búin til og farið er vel yfir tæki í sal sem og stillingar á þeim
  • teygjukennsla fer fram
  • tímatafla fyrir næstu viðtalstíma og mælingar er sett upp

Næstu þrjár vikurnar hittir þú þjálfara þinn í 30 mínútur í hverri viku þar sem farið er yfir vigtun, fitumælingu og æfingaáætlun.

Í lokatímanum er svo farið yfir allar mælingar og markmiðasetningar.

Að auki færðu:

  • tíma hjá næringaráðgjafa okkar
  • heilsuhandbókina okkar Skref fyrir skref og brúsa


Allt þetta kostar einungis kr. 14.340,- á mánuði


Næstu tímar


Þetta vefsvæði byggir á Eplica