Barnagæsla
Í Laugum er að finna 200 fermetra barnaparadís, Sprotaland, þar sem er m.a. að finna Íþróttasal þar sem börnin geta spilað fótbolta, körfubolta og handbolta, stóran bíósal og leikherbergi. Við hönnun Lauga var lögð rík áhersla á að börnin fengju mikið rými og fullkomna aðstöðu til leikja og íþróttaiðkunar. Börnin geta bæði sótt tíma í jóga og dansi eða notið alls þess sem er í boði í Sprotalandinu og á meðan geta foreldrarnir notið alls þess sem er í boði í Laugum.
Barnagæsla Laugum, Sprotaland, opið:
mánudaga - föstudaga 08:30 - 19:30
laugardaga 09:15 - 15:30
sunnudaga 10:30 - 13:30
World Class Seltjarnarnesi, Spöng og Ögurhvarf bjóða einnig upp á barnagæslu.
Barnagæsla Spöng (Frissaland)
opið:
Mánudaga og miðvikudaga 08:20-13:00 og 16:30-19:30
þriðjudaga og fimmtudaga 09:00-12:00 og 16:30-19:30
Föstudaga 08:20-13:00 og 16:30-19:30
Laugardaga 09:00-13:30
Barnagæsla Ögurhvarfi, opið:
mánudaga og miðvikudaga frá kl.08:20- 13:15 og 16:00-19:30
Þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 9:00 -13:15 og 16:00-19:30
Föstudaga frá kl. 8:20-13:15 og 16:00-19:30
Laugardaga frá kl. 9:30-13
Barnagæsla Seltjarnarnesi, opið:
Mán-fös 08:15-13:15 og 16:30-19:30
Lau 08:30-13:30
Barnagæsla Mosfellsbæ, opið:
Mánudaga og miðvikudaga 8:00 – 11:00 og 16:20 – 19:30
Þriðjudaga og fimmtudaga 16:50 – 19:30
Föstudaga 8:00 – 11:00 og 16:50 - 19:00
Laugardaga 09:30 - 12:30
ÖLL BÖRN ERU VELKOMIN - EKKERT ALDURSTAKMARK
VERÐ
Stakt skipti kr. 200
15 skipta kort kr. 2.250
30 skipta kort kr. 3.900
Nokkrir punktar sem gott er að hafa í huga:
- Hvert skipti kostar 200,- en einnig er hægt að kaupa 15 skipta kort.
- Hámarkstími fyrir hvert barn er 2 klukkustundir.
- Það er ekki hægt að ætlast til að starfsfólk okkar gefi börnunum að borða.
- Nauðsynlegt er að koma með börnin þurr en gott er að taka með bleyju svo hægt sé að skipta á þeim ef þarf.
- Ekki er æskilegt að koma með börnin þreytt í Sprotaland nema komið sé með vagn eða kerru sem þau geta hvílt sig í.
Við biðjum foreldra um að virða lokunartíma barnagæslunnar.
