World Class - Aftur á forsíðu
Laugar - Spöng - Í húsi Orkuveitunnar - Hafnarfjörður - Mosfellsbær - Seltjarnarnes - Kópavogur - Kringlan - Ögurhvarf
Aftur á forsíðu

 Haustönn hefst 13. september!

 
 

KRINGLAN – LAUGAR - MOSÓ – NESIÐ – SPÖNGIN - ÖGURHVARF

 

Ef þig langar að upplifa alvöru dansstemmningu, KOMDU og vertu með! 

 
 

 

Við erum stolt af því að kynna allt það heitasta í dansi:

 hip hop, street, jazz funk, break, broadway, contemporary, söngleikjadansar, new wave hip hop, jazz, freestyle

 

UM DANSSTÚDÍÓ WORLD CLASS
Markmið okkar er að bjóða upp á vandaða danskennslu fyrir fólk á öllum aldri. Við leggjum mikið upp úr því að nemendur dansskólans kynnist fleiri en einni hlið af dansinum. Þess vegna læra nemendur fleiri en einn stíl á hverri önn. Einnig er lögð mikil áhersla á túlkun, leikræna tjáningu og framkomu.

 

Kennarar DWC eru þaulreyndir þjálfarar, dansarar og danshöfundar með áralanga reynslu að baki í framkomu. Uppbygging danstímanna byggist á styrkingu og liðleika. Mikilvægt er að nemendur séu meðvitaðir um líkama sinn við túlkun danslistarinnar!

 

Dans er eins og hver önnur íþrótt sem þarf að stunda reglulega. Dansinn eykur þol, styrkir og liðkar líkamann í senn og er hann því afar góður jafnt fyrir sál sem líkama.

 

UPPBYGGING DANSSTÚDÍÓ WORLD CLASS
Uppbygging stúdíósins skiptist í þrjá flokka, þ.e. barnaflokk, grunnflokka og síðan unglinga- og framhalds flokka.

Barnaflokkur

 

Á laugardögum er boðið upp á sérstaka danstíma fyrir börn á aldrinum 4 til 6 ára og er því tilvalið að leyfa börnunum að dansa á meðan foreldrar stunda líkamsræktina af krafti.

Kennsla fer fram einu sinni í viku, nánar tiltekið á laugardögum. Hver tími er 50 mínútur.

Verð: 11.950 kr.

 

Nánari upplýsingar má finna undir barnadansar hér til vinstri á síðunni undir Dansstúdíó World Class.

 

Grunnflokkar

 

Byggt er á grunnþjálfun þar sem öll undirstöðuatriði í styrk- og liðleikaþjálfun eru kennd ásamt góðri tækni, túlkun og sköpun. Um er að ræða vandaða kennslu sem hentar getu og þroska nemenda.

 

Til grunnflokka teljast eftirfarandi hópar

7-9 ára
10-12 ára

Kennsla fer fram tvisvar sinnum í viku. Hver tími er 55 mínútur.

Verð: 21.900 kr.


Framhalds- og eldri flokkar
Undirstaða kennslu er sú sama og í grunnflokkum að því undanskyldu að flækjustig tímanna er hærra. Um era ð ræða flóknari samsetningar á sporum þar sem skilningur á líkama og samhengi hans við tónlist er meiri.


Til framhalds- og eldri flokka teljast:
13-15 ára
16 – 19 ára
20 plús

 

Þessir hópar skiptast í tvo hluta, þ.e. Dans I annars vegar og Dans II hins vegar.

 

Dans I
Byrjendur og eins árs reynsla

Dans II
Tveggja ára reynsla og upp úr

Kennsla fer fram tvisvar sinnum í viku. Hver tími er 60 mínútur.

Verð: 23.900 kr.

 
FRÍTT LÍKAMSRÆKTARKORT 

Nemendur í unglinga- og framhaldsflokkum fá frítt líkamsræktarkort sem spannar námskeiðstímabilið, þ.e. 12 vikur. Aldurstakmark í tækjasal er 15 ára en nemendum á aldursbilinu 13-15 ára 

er frjálst að mæta í sal á ábyrgð forráðamanna. Líkamsræktarkortið gildir í allar stöðvar World Class á meðan á námskeiði stendur.
 

NÝTT!

Á föstudögum verður opinn tími í World Class í Laugum fyrir alla dansþyrsta nemendur í unglinga- og framhaldsflokkum. Frítt er í tímann, svo það er bara að mæta á staðinn! Um krefjandi tíma er að ræða þar sem kennsla fer hratt fram og mikið dansað. Tíminn mun fara fram kl.18.30-19.30.

 
    

 

Stella Rósenkranz er deildarstjóri DWC.

Frjálst er að hafa samband við hana á netfangið: stella@worldclass.is

 

Skráning er hafin í s. 553 0000 og í afgreiðslu World Class stöðva.

Greiða verður öll námskeið við skráningu!

 

Allir eiga að finna eitthvað við sitt hæfi. Kraftmikilir tímar við nýjustu danstónlistina!

 

UPPLIFÐU DANSSTEMMNINGUNA HJÁ DWC!

 

Nánari upplýsingar um tímana sjálfa, greiðslufyrirkomulag og fleira er að finna hér vinstra megin á síðunni undir Dansstúdíó World Class. 

 

 

 

 

 


Laugar Life Fitness Hammer Strength Laugar Cafe