World Class var stofnað í júlí árið 1985 og er fyrirtækið yfir 20 ára. Fyrirtækið var stofnað að Birni Kr. Leifssyni og fjölskyldu. Starfsemin byrjaði í Skeifunni 3c í litlu húsnæði, þremur árum síðar fluttist starfsemin í Skeifuna 19 og þá var stærðin nánast tvöfölduð í fermetrum talið. Árið 1995 flutti fyrirtækið í eigin húsnæði í Fellsmúla þar sem aðstaðan var orðin 1.760m2 og voru höfuðstöðvar fyrirtækisins starfræktar þar þangað til 2004 er þær fluttust í Laugar að Sundlaugavegi 30a. Árið 2000 var opnuð glæsileg stöð í Austurstræti og árið 2001 var þriðja stöðin opnuð í Spönginni í Grafarvogi. Árið 2004 var starfsstöðinni í Austurstræti lokað og ný opnuð í húsi Orkuveitunnar að Bæjarhálsi.
Í desember 2007 og janúar 2008 voru opnaðar 4 stórglæsilegar World Class stöðvar þær eru staðsettar i Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Seltjarnarnesi og Kópavogi.
Laugar er stærsta heilsuræktarmiðstöð landsins, húsnæðið er 7.150 m2. Í Laugum er að finna heilsurækt, Baðstofuna sem er glæsilegt spa með 6 tegundum af gufum, hvíldarherbergi, heitum pott og veitingastað. Þar er einnig að finna snyrti- og nuddstofu, veitingastað, hárgreiðslustofu, sjúkraþjálfun. Unnið er í samstarfi við Reykjavíkurborg sem rekur úti- og innisundlaug á staðnum.