World Class - Aftur á forsíðu
Laugar - Spöng - Í húsi Orkuveitunnar - Hafnarfjörður - Mosfellsbær - Seltjarnarnes - Kópavogur - Kringlan - Ögurhvarf
Aftur á forsíðu

,,Einbeittu þér að jákvæðum hugsunum því hugsanirnar endurspegla það sem þú segir. Vandaðu orðavalið því tjáning þín endurspeglar framkomu þína. Temdu þér fágaða framkomu sökum þess að framkoma þín kemst upp í vana. Komdu fallega fram við aðra því gildismat þitt ræðst af framkomu þinni. Tileinkaðu þér einstök gildi því örlög þín ráðast af gildismati þínu.“  -- Gandhi

 

Gandhi var miklu meira en einstakur maður. Hann fæddist á Indlandi 2. október 1969 og lést 30. janúar 1948. Hans rétt nafn var Mohandas Karamchand Gandhi en gekk undir nafninu Mahatma Gandhi. Á sanskrít þýðir Mahatma ,,einstök sál”. Gandhi er einn af örfáum leiðtogum sem heimurinn hefur getað litið upp til. 2. október er alþjóðlegur ,,Dagur án ofbeldis” og þjóðhátíðardagur Indverja.

    Hversu oft rekum við okkur ekki á vegg þegar við erum pirruð og gleymum að koma fallega fram við aðra? Hversu oft látum við hugsanir okkar teyma okkur villu vegar? Hversu oft erum við ókurteis sökum þess að við gleymum okkur í sjálfsvorkunn og oft hreinum og klárum aumingjaskap? Hvað stendur í Biblíunni; ,,Komið fram við aðra eins og þér viljið að komið sé fram við yður.“

   Við getum algjörlega stjórnað því hvernig fólk kemur fram við okkur með því að vera fyrri til að sýna kurteisi og háttvísi. Við getum algjörlega stjórnað því hvort okkur standa allar dyr opnar, hvar sem er og hvenær sem. Við sköpum okkar eigin framtíð með framkomu okkar, eins og Gandhi sagði, eða eins og máltækið segir: ,,Þú ert þinnar eigin gæfu smiður.“

    Gandhi vissi hvað hann söng en því miður hefur mannkynið verið það aftarlega á merinni að það tekur okkur aldir að læra af okkar miklu meisturum. En svo lærir lengi sem lifir.

 

 

Þorgrímur Þráinsson


Laugar Life Fitness Hammer Strength Laugar Cafe