Upplýsingar
World Class Spönginni er 1500m2 með fullkomnum tækjasal, leikfimissal, einum fullkomnasta spinningsal landsins og barnagæslu.
Tækjasalurinn er rúmgóður og er honum skipt í þrennt: upphitunartæki, lyftingatæki og laus lóð og stangir. Áhersla er lögð á að öll tæki séu ávallt í toppstandi og tækajasalur bjartur og hreinn með fersku lofti enda gluggar og svalir á næstum alla kanta. Tækin eru frá Life Fitness og Hammer Strenght sem eru taldir vönduðustu framleiðendur á sínu sviði í heiminum í dag.
Í Spönginni er yfir 40 upphitunartæki; hlaupabretti, hjól, stigvélar og skíðavélar. Öll tækin eru búin móttakara svo þú getur hlustað á fjölda útvarps- og sjónvarpsstöðva.
Teygju- og slökunarasvæði er á neðri hæð ásamt eróbiksal, spinningsal, barnagæslu og búningsklefum.
Stöðvarstjóri:
Tinna Arnardóttir, tinna@worldclass.is
Íris Huld Guðmundsdóttir (er í fæðingarorlofi)
