Upplýsingar

World Class Seltjarnarnesi  var opnað í janúar 2008. Stöðin er 2000 m2 með fullbúnum tækjasal, baðstofu, tveimur hóptímasölum, spinningsal og barnagæslu. Dansstúdíó World Class býður upp á dans fyrir krakka á öllum aldri.

Tækjasalurinn er vel búinn upphitunartækjum, lyftingatækjum og lausum lóðum. Í stöðinni eru rúmlega  50 upphitunartæki: hlaupabretti, skíðavélar, stigvélar og hjól . Öll tækin í tækjasalnum eru frá Life Fitness og Hammer Strenght sem eru taldir vönduðustu framleiðendur á sínu sviði í heiminum í dag. Í salnum er pallur fyrir ólympískar lyftingar. Tækjasalurinn er bjartur og á teygjusvæðinu er gríðalega fallegt útsýni.

Hóptímasalirnir eru á neðri hæð hússins. Þar fara fram allir hóptímar samkvæmt stundaskrá.

Spinningsalur stöðvarinnar er rúmgóður með 40 spinninghjól.

Baðstofan býður uppá rólegt umhverfi þar sem tilvalið er að slaka á. Í baðstofunni eru þrjár tegundir af gufuböðum: Saunarium, þurrgufubað og eimbað. Róandi tónlist og hitinn gera stemninguna í baðstofunni ómetanlega. Baðstofan er í boði fyrir baðstofukorthafa. Baðstofukorthafar hafa aðgang að baðstofunni í Laugum og á Seltjarnarnesi . Hægt er að hafa einungis aðgang að baðstofunni á Seltjarnarnesi  fyrir lægra verð.

Barnagæslan er björt og rúmgóð og tekur vel á móti börnunum. Í barngæslunni er boltaland sem er gríðalega vinsælt hjá börnum á öllum aldri.

Boðið er upp á þjónustu þjálfara í tækjasal viðskiptavinum að kostnaðarlausu. Þjálfarar stöðvarinnar er Sonja Bergmann hjúkrunarfræðingur og Sigurður Sölvi sjúkraþjálfari. Tímapantanir í afgreiðslunni eða í síma 5170608.

Korthafar World Class stöðvanna hafa aðgang að öllum heilsuræktarstöðvum World Class auk aðgangs í Lágafellslaug , Laugardalslaug og Sundlaug Seltjarnarness.

Seltjarnarnesbær hefur gert samning við World Class um þjónustu við atvinnulausa.

Í boði er 3 mánaða kort fyrir þá sem eiga ekki rétt á styrk frá stéttarfélagi sínu.
Nánari upplýsingar veita bæjarskrifstofur.



Seltjarnarnes

Opnunartími

Mán til Fim: 06:00-22:30*
Fös: 06:00-22:30*
Lau: 08:00-20:00*
Sun: 08:00-20:00*

* Húsinu lokað - tækjasalur lokar 30 mín fyrr

Opnunartími barnagæslu

Mán til fös: 08:15-13:15 og 16:30-19:30
Lau: 08:30-13:30

Nánari upplýsingar

Heimilfang: Suðurströnd 8, 170 Seltjarnarnesi

Sími: 517 0608



Þetta vefsvæði byggir á Eplica