Upplýsingar

Glæsileg 1100 fm heilsuræktarstöð var opnuð í september 2010 í Ögurhvarfi 1 í Kópavogi. Tækjasalur stöðvarinnar er bjartur og rúmgóður. Tækin eru frá Life Fitness og Hammer Strenght sem eru taldir vönduðustu framleiðendur á sínu sviði í heiminum í dag. Í Ögurhvarfi eru yfir 40 upphitunartæki; hlaupabretti, hjól, stigvélar og skíðavélar. Einnig er stór og bjartur leikfimissalur undir hóptíma og danskennslu. Nýr spinningsalur er í stöðinni sem er með 27 frábærum hjólum, skemmtilegum kennurum og dúndurtónlist.

Boðið er upp á þjónustu þjálfara í tækjasal viðskiptavinum að kostnaðarlausu ásamt því sem einkaþjálfun fer fram í húsinu. Tímapantanir í síma 517 0612

Stöðvastjóri World Class í Ögurhvarfi er Aðalheiður Sigursveinsdóttir adalheidur[hjá]worldclass.is


Korthafar World Class stöðvanna hafa aðgang að öllum heilsuræktarstöðvum World Class auk aðgangs í Lágafellslaug , Laugardalslaug og sundlaug Seltjarnarness.


Ögurhvarf

Opnunartími

Mán til Fim: 06:00 - 22:30*
Fös: 06:00 - 20:30*
Lau: 08:00 - 16:30*
Sun: 10:00 - 14:00*

* Húsinu lokað - tækjasalur lokar 30 mín fyrr

Opnunartími barnagæslu

Mán og Mið: 08:20-13:15 og 16:00-19:30
Þri og Fim: 9:00 -13:15 og 16:00-19:30
Fös: 8:20-13:15 og 16:00-19:30
Lau: 09:30-13:00

Hvert skipti kostar 200 kr. en einnig er hægt að kaupa 15 skipta kort.
Hámarkstími fyrir hvert barn er 1,5 klukkustund.

Nánari upplýsingar

Heimilfang: Ögurhvarfi 1, 230 Kópavogi

Sími: 517 0612



Þetta vefsvæði byggir á Eplica