Upplýsingar
700 fm stöð með fullkomnum tækjasal, leikfimissal og barnagæslu.
Viðskiptavinir hafa afnot af búningsaðstöðu sundlaugar og sundlaug.
Stöðvastjóri World Class í Mosfellsbæ er Alfa Regína Jóhannsdóttir alfa[hjá]worldclass.is
Korthafar World Class stöðvanna hafa aðgang að öllum heilsuræktarstöðvum World Class auk aðgangs í Lágafellslaug , Laugardalslaug og Sundlaug Seltjarnarness.
Boðið er upp á þjónustu þjálfara í tækjasal viðskiptavinum að kostnaðarlausu.
Gott er að panta tíma í afgreiðslu.
Margir og fjölbreyttir hóptímar í boði. Boðið er upp á fjölmarga opna tíma sem fylgja öllum kortum og svo lokuð námskeið sem greiða þarf aukalega fyrir. Kynntu þér málið í síma 553-0000.
Athugið að ekki er leyfilegt að vera með börnin með á æfingu (nema þau sem hafa aldur til og eru gildir korthafar)
Vinsamlegast hjálpið börnunum að ganga frá eftir sig ef þið nýtið ykkur aðstöðuna
Zumba tímar:
World Class býður viðskiptavinum sínum upp á opna Zumbatíma í Mosfellsbæ á föstudögum kl 17:30-18:30.
Viðskiptavinir greiða ekki neitt en aðrir greiða 1155 kr fyrir stakan tíma.
Athugið að allir þurfa að fá sérstakan aðgöngumiða í afgreiðslu fyrir tímann sem tryggir aðgang.
Aðsóknin hefur verið gríðarlega góð enda skemmtileg og einföld spor í takt við suðræna tónlist og allir geta tekið þátt.
Kennarinn er Sigrún Björg Ingvarsdóttir Zumbakennari og einkaþjálfari.
