Baðstofa

Laugar er fyrsta flokks fimm stjörnu heilsulind með baðstofu að evrópskri fyrirmynd þar sem slökunar- og lækningamáttur vatnsins er í hávegum hafður. Í baðstofunni er alls sex blaut- og þurrgufur hver með sínu þema. Hver gufa hefur sinn einstaka ilm og má m.a. anda að sér sítrónu, piparmyntu og lavender svo eitthvað sé nefnt. Ákveðið þema einkennir þær og þar má m.a. heyra fugla- og lækjarnið, upplifa stjörnuhiminn sem og sólarupprisu eða hverfa til austurrísku bjálkakofanna.

Þá er nuddpottur byggður úr graníti þar sem hægt er að láta þreytuna líða úr sér í upphituðum jarðsjó eða hvíla þreytta fætur í þar til gerðum fótlaugum. Þeir sem vilja ferska upplifun skella sér í heit og köld víxlböð í sérútbúnum klefum eða baða sig í sex metra breiðum fossi listilega hönnuðum af Sigurði Guðmundssyni listamanni. Handbragð og listasmíði Sigurðar er einstök og einkennist af handbragði meistara sem á sér engan líkan.

Hvíldarherbergi baðstofunnar er draumi líkast þar sem íslenskt landslag prýðir veggina ásamt kínversku graníti og listaverkum Sigurðar Guðmundssonar, að ógleymdum arninum sem prýðir miðju stofunnar.
Ekki má gleyma að minnast á veitingaaðstöðuna í baðstofunni. Þar er hægt að trítla á sloppnum eða handklæðinu og fá sér svalandi drykk eða léttar veitingar í fallegu umhverfi.

Að eiga dag í baðstofunni er draumi líkast, láta líða úr sér og hlaða batteríin fyrir hið daglega amstur.

Aðgangur að Baðstofu kostar 4.990,- á mann

Verð fyrir hópa

  • 10 - 15 manns  4.300,-
  • 15 - 20 manns  4.000,-
  • 20 - 30 manns  3.600,-
  • yfir 30 manns   3.400,-

Frekari upplýsingar veitir Auðbjörg audbjorg@worldclass.is


Við minnum gesti á að taka með sér sundföt, skápar í búningsherbergjum eru ólæstir en við lánum lása fyrir staka tíma í afgreiðslu, þeir sem vilja kaupa sér veitingar í veitingastofu Baðstofunnar þurfa að muna eftir að taka með sér veskið. Aldurstakmark í Baðstofu er 18 ár.


Laugar

Opnunartími World Class Laugum

Mán til Fim: 06:00-23:30*
Fös: 06:00-23:30*
Lau: 08:00-22:00*
Sun: 08:00-20:00*

* Húsinu lokað - tækjasalur og Baðstofa lokar 30.mín fyrr

Opnunartími barnagæslu

Mán til Fös: 08:30-19:30
Lau: 09:15-15:30
Sun: 10:30-13:30

Nánari upplýsingar

Heimilisfang: Sundlaugavegur 30a

Sími: 553 0000

Email: laugar@worldclass.is