Upplýsingar
Líkamsrækt allan sólarhringinn!
World Class í Kringlunni er opin allan sólarhringinn, en til að getað sótt stöðina utan hefbundins opnunartíma þarf að sækja um aðgang skriflega á einhverri af World Class stöðunum. Vakin er athygli á því að enginn starfsmaður er á vakt utan hefbundins opnunartíma.
Stöðin er 1500 fm með fullkomnum tækjasal, 2 leikfimissölum (CrossFit og leikfimissal) og Dansstúdíó World Class með danskennslu.
Hægt er að fá fá tíma hjá þjálfara í sal korthöfum að kostnaðarlausu. Þjálfarar bjóða upp á tíma mánudaga, miðvikudaga og föstudaga 06:15-14 og þriðjudaga og fimmtudga 11-19. Auk þess er þjálfari á staðnum annan hvern laugardag 09-14. Sé óskað eftir leiðbeiningum í sal utan þessa tíma má hafa samband við afgreiðslu Kringlunnar.
Stöðvastjóri World Class í Kringlunni er Guðmundur Hafþórsson, gummih@worldclass.is
Opið allan sólarhringinn
Opið er í World Class Kringlunni allan sólarhringinn og stendur öllum korthöfum til boða að nýta þá þjónustu án endurgjalds. Til að komast inn í stöðina utan hefbundins þjónustutíma þarf sérstakan aðgang en hægt er að fá slíkan aðgang útbúinn í afgreiðslu allra World Class stöðva.
