WOD kort

Sala hefst á WOD kortum 1.apríl

World Class mun taka upp aukagjald fyrir CrossFit iðkun en hjá því verður ekki komist, bæði  til að halda í gæðin og eiga möguleika á að auka þau.

Gjaldtaka hefst 1.apríl og eru verðin eftirfarandi:

1 mánuður 2.990 kr

3 mánuðir 8.900 kr

1 ár 29.900 kr

 Þjálfarar í Crossfit Iceland eru með þeim bestu og áhugasömustu á landinu og við teljum þá vera að vinna gríðarlega gott starf og mikilvægt fyrir viðskiptavini að hafa trausta og metnaðarfulla þjálfara.Til viðbótar við Crossfit kennararéttindi þá eru í kennaraliðinu íþróttafræðingar og nemar í íþróttafræðum ,hjúkrun og sjúkraþjálfun sem er gríðarlega jákvætt.

 Við viljum vekja athygli á því að iðkendur í Crossfit Iceland geta sótt WOD tíma í Egilshöll og í Kringlunni auk þess að hafa aðgang að 3 sundlaugum, 10 heilsuræktarstöðvum, þjálfurum í sal og rúmlega 300 opnum tímum á viku svo sem Spinning, Hot Yoga, Tabata og Kviður & Bak ásamt ýmsum fleiri tímum. Að auki hefur World Class kostað Vetrarleika Crossfit, styrkt merkingu á keppnisboli fyrir hin ýmsu mót og stendur fyrir árlegum Crossfit Iceland leikum.

Með vinsemd og virðingu