Zumba opinn tími
World Class býður viðskiptavinum sínum upp á opna Zumbatíma í Laugum, Mosfellsbæ og Ögurhvarfi.
Þessir tímar standa öllum korthöfum hjá World Class til boða án endurgjalds.
Athugið að allir þurfa að fá sérstakan aðgöngumiða í afgreiðslu fyrir tímann sem tryggir aðgang.
Aðsóknin hefur verið gríðarlega góð enda skemmtileg og einföld spor í takt við suðræna tónlist og allir geta tekið þátt.
