Púlsspinning

Í World Class í Spöng er tölvukerfi sem notað er til að mæla hjartsláttartíðni (púls) þátttakenda í spinningtímum. Kerfinu var komið fyrir í vor og höfum við verið að prófa okkur áfram og þjálfa kennara í notkun þess. Frá og með 1.júlí 2011 verða allir spinningtímar í World Class í Spöng púlsspinningtímar. Það er mjög áhugavert og skemmtilegt að fylgjast með púlsinum við álag og getur hjálpað gríðarlega við að bæta líkamsástandið.  Við hvetjum alla viðskiptavini að prófa púlsspinning.
UNDIRBÚNINGUR FYRIR PÚLS-SPINNINGTÍMA

1. Fá miða í afgreiðslunni. Afhending miða hefst 30 mín fyrir tímann. Mæta tímanlega! Miði = hjól.

28 komast að í púls-kerfið þó svo að 32 hjól séu í salnum.

2. Setja síma, veski, lykla eða annað verðmætt í "pant" í afgreiðsluna og fá sendi og strappa (ól um brjóstkassann) í staðinn. Strappar verða  seldir og leigðir út
frá 1.júlí
3. Leggja númerið á sendinum á minnið, smella sendinum á strappann og festa hann í kringum brjóstkassann (hafa næst húðinni). Passa þarf að hann sé fyrir miðju og bleyta þarf strappann örlítið undir sendinum.

4. Þegar númerið á sendinum birtist á skjánum þarf að fara til kennara og skrá sig í tölvukerfið. Hægt er að skrá hámarkspúls eða aldur. Þeir sem ekki þekkja hver hámarkspúlsinn sinn er styðjast við viðmiðunarreglu: 220-aldur. Hægt er að skrá sig undir nafni, dulnefni eða númeri. þitt er valið!

5. Ákjósanlegt er að allir séu tilbúnir 5 mín fyrir tímann svo hægt sé að hefja tímann stundvíslega. ATH. Starfsfólk í afgreiðslunni hættir að deila út sendum og ströppum 5 mín fyrir tímann af þessum ástæðum. Svo að tíminn geti byrjað á réttum tíma verður kennarinn að vera strangur á því að allir mæti tímanlega því þátttakendur geta ekki komist inn í kerfið þegar búið er að ýta á "play-takkann"!!!

6. Eftir tímann skal skila inn sendi og strappa í afgreiðsluna og þið fáið tilbaka það sem þið settuð í "pant".
7. Allir fara heim sælir og glaðir

Engir tímar á dagskrá