Prana Jóga

Í þessum tímum verður boðið uppá jóga fyrir byrjendur og lengra komna. Farið verður í alla þrjá þætti sem tengjast jóga; öndun (pranyama), jógastöður (asana) hugleiðslu, slökun og möntrur (dharana).  Farið verður rólega af stað en tímarnir geta verið mjög kröftugir. Hér  reynum við á alla þætti líkamanns,  aukum liðleikann á allann hátt, hryggurinn verður liðugri, opnum öll liðamótin betur og betur og náum betri og meiri teygju.  Vekjum upp líkamsvitundina og uppskerum betri líkamsstöðu, aukinn styrkur og úthald og síðast en ekki síst öðlumst við betra jafnvægi til að takast á við daglegt amstur.

Þegar við byrjum að ástunda jóga markvisst fer ákveðið ferli í gang, leysum úr læðingi prönuna eða lífsorkuna og hreinsun á sér stað í líkamanum,  taugakerfið róast, stoðkerfið eflist og öll líkamsstarfsemi verður virkari. 

Í jóga fáum við tækifæri til að stígu út úr huganum og leita inná við í hjarta okkar.  Viskan býr hið innra og við verðum meira og meir meðvituð um sjálfan okkur.  Prana þýðir lífsorka og því meiri lífsorka því meiri gleði! 


Kennarinn, Gyða Dís, skrifar:

Ég hef stundað jóga til fjölda ára , kenni Hot yoga og Prana Jóga hjá World Class í  Egilshöll.  Áður en ég kynntist jóga var ég langhlaupari, hef hlaupið maraþon og ultra marathon eða Laugarveginn ofl. Ásamt því að stunda almenna líkasrækt reglulega.  Vegna hnémeiðsla leitaði ég leiða til að líða betur og kynntist jóga svo hot yoga.  Líf mitt tók algeran viðsnúning og stunda ég einungis jóga í dag ásamt því að njóta útiveru.  Ég mun útskrifast  sem  jógakennari með alþjóðleg jógakennararéttindi frá Jóga og blómadropaskóla Kristbjargar í byrjun júní.  Mottó mitt í lífinu er þetta;   Allir dagar eru hamingjudagar og þess virði að elska lífið sjálft hvern einasta dag með gleði hlátri og að lifa lífinu til fulls hvern einasta dag og huga að því að næra líkama og sál.  Namaste   www.gydadis.is


Engir tímar á dagskrá