Mosóskokk
Við viljum fá þig með okkur í Mosóskokk !
Ert þú ein/n af þeim sem ert alltaf á leiðinni að byrja á því að hlaupa
reglulega. Ef svo er þá er Mosóskokk eitthvað fyrir þig. Aðstaðan okkar er
í World Class í Mosfellsbæ nánar við Lækjarhlíð. Það er óhætt að segja að
hér í Mosfellsbæ séu fjölbreyttar hlaupaleiðir, fjöll, dalir, mikil
náttúrufegurð og ekki má gleyma félagsskapnum sem gerir hlaupin náttúrulega
enn skemmtilegri. Við hlaupum á þriðjudögum og fimmtudögum kl 17:30 og svo
á laugardögum kl:9:30.
Á þriðjudögum er hlaupið frá 6 km og upp í 11 kílómetra, allt eftir getu
hvers og eins og síðan er teygt vel á. Á fimmtudögum eru sprettæfingar eða
tempóhlaup og styrktar og teygjuæfingar á eftir og svo á laugardögum er
farið langt og rólega en auðvitað getur hver og einn stjórnað því hversu
langt hann vill fara.
Við byrjum á því að hita upp og förum fyrstu metrana saman síðan skiptast
leiðir eftir getu og sumir fara styttra meðan aðrir fara lengra. Síðan
hittast allir í lokinn og gera styrktar- og teygjuæfingar annað hvort inni í
World Class eða úti á grasi.
"Hvert skref skiptir máli, allt telur! Sýndu þolinmæði, velgengni er
langhlaup, sýndu framfarir á hverjum degi og framtíðin er þín"
Leiðbeinandi hópsins er Halla Karen Kristjánsdóttir og allar nánari
upplýsingar er hægt að fá í síma 8928880 eða á halla@bhs.is
