Mosóskokk

Við viljum fá þig með okkur í Mosóskokk !
Ert þú ein/n af þeim sem ert alltaf á leiðinni að byrja á því að hlaupa
reglulega.  Ef svo er þá er Mosóskokk eitthvað fyrir þig.  Aðstaðan okkar er
í World Class í Mosfellsbæ nánar við Lækjarhlíð. Það er óhætt að segja að
hér í Mosfellsbæ séu fjölbreyttar hlaupaleiðir, fjöll, dalir, mikil
náttúrufegurð og ekki má gleyma félagsskapnum sem gerir hlaupin náttúrulega
enn skemmtilegri.  Við hlaupum á þriðjudögum og fimmtudögum kl 17:30 og svo
á laugardögum kl:9:30.  


Á þriðjudögum er hlaupið frá 6 km og upp í 11 kílómetra, allt eftir getu
hvers og eins og síðan er teygt vel á.  Á fimmtudögum eru sprettæfingar eða
tempóhlaup og styrktar og teygjuæfingar á eftir og svo á laugardögum er
farið langt og rólega en auðvitað getur hver og einn stjórnað því hversu
langt hann vill fara.


Við byrjum á því að hita upp og förum fyrstu metrana saman síðan skiptast
leiðir eftir getu og sumir fara styttra meðan aðrir fara lengra.  Síðan
hittast allir í lokinn og gera styrktar- og teygjuæfingar annað hvort inni í
World Class eða úti á grasi.


"Hvert skref skiptir máli, allt telur!  Sýndu þolinmæði, velgengni er
langhlaup, sýndu framfarir á hverjum degi og framtíðin er þín"

Leiðbeinandi hópsins er Halla Karen Kristjánsdóttir og allar nánari
upplýsingar er hægt að fá í síma 8928880 eða á halla@bhs.is



Næstu Mosóskokk tímar

  • Laugardagur 9:00 Mosfellsbær
  • Þriðjudagur 17:30 Mosfellsbær
  • Fimmtudagur 17:30 Mosfellsbær

Kennarar

Fyrirsagnalisti