Jóga

Almennt um jóga...

Spurningar og svör:
Mig langar að prófa jóga en ég er svo stirð/ur að ég þori ekki?  
Markmið með jógaæfingum er einmitt að auka liðleika, þannig að enginn er of stirður til að mæta í jóga. Ef stirðleiki er vandamál, prófaðu þá jóga.   
 
Brennir maður einhverju í jóga?  
Markmiðið með jógaæfingum er ekki brennsla, en þó má nefna að samkvæmt kenningum Stu Mittleman sem skrifaði bókina Slow Burn, þá getur hægur þjálfunarpúls líkt og sá sem myndast við jógaæfingar aðstoðað við brennslu. Markmið jógaæfinga er aukinn liðleiki, innri kvið- og bakstyrking, slökun, stöðugleiki og djúpöndun, svo eitthvað sé nefnt. Ef þú vilt brenna meira, farðu þá á brettið eða út að skokka áður en þú mætir jógatíma.  
 
Algeng karlaspurning: Er jóga ekki bara konuleikfimi?  
Þvert á móti. Flestir karlmenn sem hafa mætt í jógatíma segja: „Þetta er miklu erfiðara en ég hélt.“ Stirðleiki er vandamál hjá alltof stórum hópi karlmanna, og þeir virðast oft vera eldri en þeir eru fyrir vikið. Maður verður ekki stirður við að verða gamall, en maður verður gamall ef maður er of stirður. Stirðir og stressaðir karlmenn eru sérstaklega hvattir til að mæta í jóga.


Næstu Jóga tímar

  • Þriðjudagur 18:30 Mosfellsbær

Kennarar

Fyrirsagnalisti