Jóga Nidra
Boðið er upp á jógatíma, Jóga Nidra, þar sem farið verður í jógastöður í 30-40 mínútur og í Yoga Nidra í 20-30 mínútur.
Yoga Nidra er mjög gömul jógaástundun sem hefur notið vaxandi vinsælda í hinum vestræna heimi á liðnum árum. Það er ekki síst vegna þess að þessi aðferð losar um streitu og hentar því fólki sem vinnur undir miklu álagi.
Yoga Nidra leiðir til vakningar varðandi öndunartækni, orku og líkamsvitund. Farið er í djúpt slökunarástand. Þar getur líkaminn heilað sig, náð jafnvægi og losað um streitu. Maður sleppir taki á órólegum hugsunum. Þessi tækni hentar hraustu fólki við að takast á við mikið álag og getur hjálpað veiku fólki til að losna við sjúkdóma.
Hildigunnur Haraldsdóttir leiðir Yoga Nidra.
Jógakennari, með Amrit Desai sem meistara og Guðjón Bergmann sem kennara.
Rope Yoga kennari, með Guðna Gunnaron sem kennara.
Yoga Nidra kennari, með Amrit Desai sem meistara og Kamini Desai o.fl. sem kennara.
