Jóga fyrir golfara

Með árunum  eigum við  það til að missa sveigjanleika og styrk ef við gerum ekkert  í því að viðhalda því.  Aukinn sveigjanleiki og styrkur geta komið í veg fyrir íþróttameiðsli svo sem tognanir og fleira.  Golfsveiflan leggur gríðarlegt álag á bakið. U.þ.b. 53% karla og 45% kvenna sem spila golf glíma við bakverki.

Ávinningur með jóga fyrir golfara er meiri styrkur og sveigjanleiki, betra jafnvægi, aukin einbeiting, meira úthald, minni líkur á meiðslum.  Allt þetta gefur okkur lengri og kraftmeiri högg, og umfram allt verðum við ánægðari kylfingar.

Katherine Roberts býr í Arizona í Banaríkjunum þróaði  sérhæft æfingakerfi YFG, “Jóga Fyrir Golfara” í samstarfi við fræga kennara, atvinnumenn í golfi og aðra sem koma að þjálfun golfara, til dæmis Hank Haney sem þjálfaði Tiger Woods og Mark O´Meara. Það eru þrjú styrkleikastig, Par, Birdie og Eagle sem við förum í.

Tíminn byggist upp á öndunaræfingum, upphitun, jógastöðum , teygjum og slökun, sem eru sérsniðnar að þörfum golfara.

http://www.facebook.com/golfjoga.is

Jóga fyrir golfara í Spönginni

Vegna mikillar aðsóknar í jóga fyrir golfara í Spöng eru miðar afhentir 30 mínútum fyrir tímann.  Hægt er að nálgast miða í afgreiðslu, í tímann komast 24.  Fólki er bent á að vera búið að hita upp fyrir tímann og taka með sér golfkylfu.



Engir tímar á dagskrá