Hressingarleikfimi

Góð upphitun, fjölbreyttar hreyfingar og samsetningar ásamt góðum æfingum sem framkvæmdar eru á dýnum og með teygjuböndum. Einnig er unnið vel með kvið, bak og allan líkamann. Gerðar eru æfingar við rimlar. Í lok hvers tíma eru góðar teygjur og slökun. Góður og vandaður tími.

Kennarinn er hin þaulreynda Ástbjörg Gunnarsdóttir íþróttakennari sem hefur hlotið Fálkaorðuna fyrir vel unnin störf innan íþróttahreyfingarinnar síðustu 50-60 ár.

World Class er stolt af því að hafa Ástbjörgu í sínu liði enda góð fyrirmynd og frábær kennari.



Næstu Hressingarleikfimi tímar

  • Fimmtudagur 16:30 Laugar
  • Þriðjudagur 10:00 Seltjarnarnes
  • Þriðjudagur 16:30 Laugar

Kennarar

Fyrirsagnalisti