Hádegispúl

Ef þú vilt brjóta upp daginn og endurnæra þig fyrir vinnu eða annað seinnipartinn þá er hádegispúl einmitt fyrir þig.

Í þessum tímum er blandað saman styrktar- og þolæfingum á skemmtilegan og fjölbreyttan hátt. Notast er við stjöðvaþjálfun, interval þjálfun, tabata þjálfun og æfingar þar sem fólk vinnur saman.

Markmið Hádegispúls er m.a að fá iðkendur til að reyna á sem flesta vöðva líkamans og enginn einn tími er eins. Mottó hádegispúls er “ Ef æfingin er erfið þá brosum við bara breiðara”.

Þetta er klárlega skemmtilegir tímar með miklum átökum.


Næstu Hádegispúl tímar

  • Fimmtudagur 12:00 Seltjarnarnes
  • Fimmtudagur 12:00 Kringlan
  • Þriðjudagur 12:00 Seltjarnarnes
  • Þriðjudagur 12:00 Kringlan