Almennt um opna tíma

World Class kappkostar að bjóða upp á fjölbreytta, vandaða og skemmtilega leikfimitíma sem hæfa viðskiptavinum á öllum aldri.

Kennarar okkar eru á öllum aldri, með menntun og góða reynslu,hafa mikinn metnað, sinna kennslunni af alúð og áhuga og leggja sig fram við að þjóna viðskiptavinum sem best. Kennarar World Class hittast reglulega og bera saman bækur sínar og læra hver af öðrum. Einnig eru haldin endurmenntunarnámskeið á vegum World Class um ákveðin heilsutengd efni sem nýtast kennurum í starfi.

Alls bjóða 6 World Class stöðvar upp á opna tíma; Laugar, Seltjarnarnes, Spöngin, Mosfellsbær, Ögurhvarf og Kringlan. Boðið er upp á u.þ.b. 430 tíma Á VIKU!!!

Allir opnir tímar í tímatöflu eru innifaldir í öllum kortum í World Class.


Mikilvægar upplýsingar fyrir viðskiptavini:

  • Hver tími er 60 mínútur nema annað sé tekið fram. Það er sá tími sem kennari og iðkendur hafa til að koma sér fyrir, gera æfingar og ganga frá salnum aftur.
  • Gangið snyrtilega og varlega um öll tæki og tól.
  • Talið við kennara fyrir/eftir tíma ef þið hafið spurningar varðandi tímana eða ef þið viljið fá ráðleggingar um æfingar.
  • Æskilegt er að hafa brúsa með vatni meðferðis í tíma.
  • Á hverri World Class stöð eru lítil handklæði sem gott er að hafa með í tíma til að þurrka mesta svitann.
  • Í Hot Yoga tímum er mikilvægt að taka með sér sitt eigið handklæði eða leigja handklæði í afgreiðslu þar sem svitamyndun er mikil í tímunum og lofthitinn mikill.
  • Hlustið alltaf á eigin líkama, leggið ykkur fram en leitið til kennara ef þið eruð í vafa um ákveðnar æfingar.
  • Einu opnu tímarnir sem hafa fjöldatakmörkun eru spinningtímarnir (sjá reglur hér neðar)

Reglur í spinningsal:

  • ÞAÐ ÞARF MIÐA Í ALLA SPINNINGTÍMA. Miðar afhendast 30 mín áður en tími hefst.
  • Vinsamlegast takið aðeins frá eitt hjól á mann.
  • Spinningsalurinn er að öllu jöfnu opinn og hægt er að taka frá hjól EN.... viðkomandi verður að vera sestur á hjólið 5 mínútum áður en tíminn hefst annars er hætta á að viðkomandi missi hjólið til annarra viðskiptavina.
  • Gangið vel um hjólin. Ekki þvinga skrúfur, sveifar eða handföng eða nota óhóflegt afl til að stilla hjólin.
  • Þrífið hjólin að notkun lokinni
  • Fylgið leiðbeiningum kennara um stillingu á hólunum
  • Notið vöðvana til að stjórna hjólinu en ekki láta hjólið stjórna ykkur!

Reglur í jógasal:

  • ÞAÐ ÞARF MIÐA Í ALLA UPPHITAÐA JÓGATÍMA. Miðar afhendast 30 mín fyrir hvern tíma.
  • Hafið meðferðis vökva
  • Æskilegt er að hafa hljóð eftir að tími er hafinn
  • Hafið meðferðis stórt handklæði í alla upphitaða tíma
  • Ef jóga er stundað reglulega mælum við með því að fólk komi með sínar eigin jógadýnur

Allar athugasemdir og/eða óskir varðandi tíma berist til Gígju Þórðardóttur deildarstjóra gigja[hjá]worldclass.is


Næstu tímar