Upplýsingar um námskeið
Við leggjum áherslu á gæði og góða þjónustu við viðskiptavini okkar og námskeiðin eru sérsniðin að ákveðnum hópum. Kennararnir leggja mikla áherslu á gott aðhald, fræðslu, gæði æfinga og ekki síst skemmtun.
Það er gríðarlega gaman að vera í góðum hópi undir handleiðslu kennara sem er umhugað um að nemendur nái árangri og hvetur fólk til að setja sér markmið og finnur leiðir til að hjálpa því við að ná þeim.
Öllum námskeiðum fylgir:
- lokaðir hóptímar 2-3 sinnum í viku
- aðgangur að öllum 9 stöðvum World Class og öllum opnum tímum
- mjög mikið aðhald þar sem fylgst er vel með mætingum
- vikulegir tölvupóstar frá kennara með hvatningu og heilsuráðum
- vigtun reglulega (á ekki við öll námskeiðin)
- ástandsmæling í byrjun og lok námskeiðs
- ummálsmáling í byrjun og lok námskeiðs (á ekki við öll námskeiðin)
- vatnsbrúsi
- tími hjá þjálfara í sal sem útbýr æfingaáætlun sem hentar þér og kemur þér af stað í tækjasal samhliða námskeiðinu
Korthafar með ótímabundinn samning greiða lægra gjald
Korthafar með tímabundinn samning fá framlengingu á kortinu sem nemur tímalengd námskeiðsins
Nánari upplýsingar í afgreiðslu eða hjá Gígju Þórðardóttur deildarstjóra gigja@worldclass.is
